Þriðjudagur, 07. ágúst 2001
:: birt á www.strik.is/kvikmyndir ::
Skýjaglópur opnar augun
Leikstjórinn Cameron
Crowe og leikarinn Tom Cruise eru mjög miðasöluvænir gaurar og
halda sig alla jafna við efni sem fellur almennigni vel í geð. Þeir taka því
báðir umtalsverða áhættu með "Vanilla Sky" sem er bæði löng, flókin og síður
en svo líkleg til að ná til allra. Myndin er endurgerð hinnar áhugaverðu "Abre
los ojos", sem Spánverjinn Alejandro Amenábar ("The Others")
gerði árið 1997. "Vanilla Sky" mun ekki koma neinum sem séð hafa þá mynd á
óvart, en öðrum gæti hins vegar krossbrugðið og talið sig vera stadda á mynd
eftir súrrealsitann David Lynch frekar en hinn þægilega Crowe.
"Vanilla Sky" er nefnilega afskaplega brotakennd og erfið mynd og mörgum mun
sennilega (hund)leiðast yfir henni. Það hvernig myndi leggst í fólk mun
aðallega ráðast á hvaða forsendum það nálgast hana og ef maður lætur ekki nöfn
Crowe, Cruise, Penélope Cruz afvegaleiða sig þá eru allar líkur á að
þessi áhugaverða, poppaða og ameríkaniseraða endurgerð á spænsku myndinni
falli manni ágætlega í geð.
Allt í rugli
Söguþráður myndarinnar flókinn og atburðarásin öll í upplausn og líkt og
aðalpersónan vita áhorfendur sjaldnast hvort þeir séu staddir í
raunveruleikanum, draumum, martröðum, fortíð eða nútíð. David Aames,
sem Cruise leikur, er moldríkur og myndarlegur gaur sem lifir hratt í núinu og
sefur helst aldrei hjá sömu konunni tvisvar. Hann kolfellur óvænt fyrir hinni
heilladi Sofiu (Cruz) en í kjölfarið tekur líf hans óvænta og
skelfilega stefnu og verður hrein martröð. Það borgar sig ekki að fara nánar
út í þessa sálma hér en þó ætti að vera óhætt að upplýsa það að myndin er
ofhlaðinn hrærigrautur rómantískrar ástarmyndar, film noir,
vísindaskáldskapar og alls andskotans annars þannig að það þarf enginn að
skammast sín fyrir að finnast hann standa á gati og ganga í hringi yfir þessu
öllu saman.
Það verður þó ekki af myndinni tekið að hún er rosalega smart og heillandi
sjónrænt . Þá er hún hlaðinn endalausum vísunum í dægurmenningu nútímans, ekki
síst poppið, enda er Crowe algjörlega með poppkúltúrinn á heilanum. Þessar
vísanir eru flestar bullandi merkingarbærar og gefa vísbendingar um
framvinduna og ástand Davids. Þetta er allt saman voða skemmtilegt og kúl, en
þó má segja að Crowe fari offari og myndin verður því eins og risastórt
stuðandi barrokkverk, þar sem öllu ægir saman í of stórum skömmtum. Það er í
þessari rosalegu ofhleðslu sem megin munurinn á spænsku myndinni og þessari
liggur og því verður ekki neitað að frummyndin rúllaði betur, en það breytir
því þó ekki að "Vanilla Sky" verður á köflum ansi mögnuð og fólkin sagan
virðist öðlast meiri fyllingu í öllum djöfulganginum í Crowe.
Froðuleikarar í góðum fílíng
Það hjálpar myndinni líka heilmikið að allir helstu leikarar eru að standa sig
ágætlega. Cameron Diaz, sem er í stöðugri framför, er þó áberandi best
og sýnir frábæra takta í hlutverki afbrýðisamrar hjásvævu Davids. Hún er e.k.
fatal attraction 21. aldarinnar. ÚFF!
Þá er hin mjög svo geðþekki Jason Lee ("Chasing Amy", "Almost Famous")
fínn í hlutverki eina vinar Davids og jaxlinn Kurt Russel er mátulega
úti á þekju í hlutverki geðlæknis sem reynir að ráða gátuna David Aames.
Undirritaður hefur aldrei þolað skötuhjúin Tom Cruise og Penélope Cruz og er á
því að parið sé eitt jafnleiðnlegasta leikarapar sem sögur fara af. Þau standa
sig þó bæði ágætlega hér og tekst alveg að vera ekki leiðinleg. Þá er sérstök
ástæða til að hrósa Cruise fyrir að það að þrátt fyrir áberandi skort á
hæfileikum tekst honum að skila David sómasamlega. Cruz var hins vegar
áberandi fallegri og betri í upprunalegu myndinni frá 1997 og miðað við það
hversu hæfileikum hennar og útliti hrakar hratt má gera ráð fyrir að Cruise
skipti henni út fyrr en seinna.
Þeir sem fíla væmnan viðbjóð eins og Jerry Maguire, sem er fyrsta
samstarfsverkefni Crowe og Cruise, og finnst Tom Cruise bestur í myndum á borð
við "Mission Impossible" eru dæmdir til að verða fyrir vonbrigðum með "Vanilla
Sky" en þeir sem hafa gaman að flottum og flóknum myndum sem svolítið puð er
að komast í gegnum fá heilmikið fyrir sinn snúð, en David Lynch hefði gert
þetta betur.
| 21:56 |