Þriðjudagur, 10. september 2002
24 Hour Party People
44 hræður hlustuðu á The Sex Pistols spila í klúbbi í Manchester árið
1976. Framhaldið er víst hluti af mannkynssögunni. Í það minnsta ef marka má Tony Wilson sögumann myndarinnar 24 Hour Party People. Hann og fleiri stofnuðu, innblásnir af frelsisanda pönksins, útgáfuna Factory Records sem gaf út fyrstu verk sveita eins og Joy Division, Happy Mondays og New Order.
44 hræður hlustuðu á The Sex Pistols spila í klúbbi í Manchester árið 1976. Framhaldið er víst hluti af mannkynssögunni. Í það minnsta ef marka má Tony Wilson sögumann myndarinnar 24 Hour Party People. Hann og fleiri stofnuðu, innblásnir af frelsisanda pönksins, útgáfuna Factory Records sem gaf út fyrstu verk sveita eins og Joy Division, Happy Mondays og New Order.
Wilson skrifaði samninginn við listamennina með blóði sínu og lagði þannig grunninn að fóstbræðralagi nokkurra brjálæðinga, plötuútgáfu og hinum vinsæla Hacienda klúbb í Manchester. Allt var þetta því miður byggt á sandi og Wilson allt of klikkaður til að geta látið þetta ganga.
Sagan af þessu brölti er ævintýri líkust myndin hrá, fyndin og alveg voðalega póstmódernísk en Wilson var sko póstmódernískur áður en það þótti fínt. Breski grínistinn Steve Googan fer á kostum í hlutverki Wilsons og sjálfsagt hefði ekki verið hægt að fá skemmtilegri leiðsögumann um Manchester í árdaga rave menningarinnar.
| 22:35 |