»  kvikmyndir  »  nóvember 2002
efnisflokkar

nýlegir dómar
nóvember 2002

a long time ago...
Ekki meir, ekki meir
Miðvikudagur, 06. nóvember 2002

Halloween:Resurection

Alfred Hitchcock kynnti gamla, góđa búrhnífinn til sögunnar sem ákjósanlegt morđvopn í Psycho áriđ 1960. John Carpenter fékk Michael Myers hnífinn svo fyrst í hendur í Halloween áriđ 1978 og hann hefur veriđ ađ brytja niđur barnfóstrur á táningsaldri nánast óslitiđ síđan. Og nú er mál ađ linni.

Halloween myndirnar eru orđnar átta og ţessi nýjasta bćtir engu viđ löngu
útvatnađan bálkinn en nćr nýjum hćđum í lélegum leik og andleysi og ţó menn
séu eitthvađ ađ reyna ađ hafa húmor fyrir sjálfum sér hérna bjargar ţađ
engu eftir ađ Scream tók ţessa kvikmyndagrein í gegn.
Ţađ er samt alltaf eitthvađ heimilislegt viđ hann Michael ţar sem hann
hengslast áfram í samfestingnum sínum, pollrólegur međ hvítu grímuna sína, viđ hallćrislegan og huggulegan skemmtaraundirleik Carpenters. Gamli
sjarminn og smá spennukippur í lokin ná ţó ekki ađ bjarga myndinni. Michael er hrein illska og ódrepandi, eins og allir vita, en myndirnar um hann hafa vonandi sungiđ sitt síđasta.


date
Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff