»  kvikmyndir  »  janúar 2003
efnisflokkar

nýlegir dómar
janúar 2003

a long time ago...
Gulleyjan í geimnum
Laugardagur, 04. janúar 2003

Það ætti engum að leiðast á Gullplánetunni enda byggir hún á hinni sígildu sögu Roberts Louis Stevenson en það gamla sjóræningjaævintýri stendur enn fyllilega fyrir sínu þó það hafi hér verið fært í framtíðarbúning. Andi gömlu sögunnar svífur þó yfir vötnum; geimskipin eru eins og gömul sjóræningjaskip í útliti og á úthöfum alheimsins sigla geimsjóræningjar líka undir svörtum flöggum.
Myndin er mátulega hröð og býsna smart á köflum þannig að ekki þarf að kvarta yfir útlitinu. Þá er myndin mátulega spennandi og illa innrættir og framandi sjóræningjarnir eru líklegri til að skjóta ungviðinu öllu meiri skelk í bringu en gengur og gerist með Disneyskúrka.

Skemmtilegustu persónur gömlu sögunnar eru líka býsna sprækar í nýjum búningum og þar eru þeir að vanda í fararbroddi Long John Silver og einbúinn Ben. Silver er orðinn að hálfgerðu vélmenni en líkt og fyrr þarf hann að glíma við mannlegar tilfinningar þannig að þetta er allt eins og það á að vera.

Fréttablaðið.


date
Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff