Börn bjarga heiminum, aftur
Fimmtudagur, 06. febrúar 2003
Spy Kids

Spy Kids var vel heppnuð og skemmtileg fjölskyldumynd sem gerði það gott í kvikmyndahúsum árið 2001 og því sjálfsagt að fylgja henni eftir með framhaldi. Myndin var gerð fyrir litla peninga á amerískan mælikvarða og naut þess að leikstjórinn Robert Rodriguez er frumlegur og skemmtilegur náungi sem kann að gera mikið út litlu. Þá voru krakkarnir sem léku njósnasystkinin heillandi og skemmtileg og ekki spillti fyrir að erkitöffarinn Antonio Banderas lék föður þeirra með ýktum tilþrifum.
Nýja myndin gefur þeirri fyrri lítið eftir. Krakkarnir eru enn hin mestu krútt en lítið fer fyrir söguþræði í tæknibrelluhamaganginum. Börnin enda á einhvers konar eyju dr. Moreau þar sem erfðabreyttar furðuskepnur leika lausum hala. Þeim sem eru komnir til vits og ára finnst sjálfsagt full langt gengið en yngri áhorfendur skemmta sér að sama skapi konunglega.
Þá er hresst upp á myndina með því að tefla fram illkvittnum, systkinum og börnum vonds njósnara, andstæðingum þeirra Carmen og Juni og hinn kostulegi Steve Buschemi á góða innkomu sem klikkaður vísindamaður. Sá leikari bætir allar myndir sem hann kemur nálægt. Spy Kids 2 er þvottekta sunnudagsmynd fyrir fjölskylduna og virkar það vel að þegar er byrjað að leggja drögin að þriðju myndinni.
| 20:38 |