Mánudagur, 24. febrúar 2003
Stel fyrirsögninni frá Bigga. Þetta verður ekki betra.
The Ring

Hér er á ferðinni alveg þolanleg hryllingsmynd sem er endurgerð japönsku myndarinnar Ringu frá árinu 1998. The Ring segir frá stórundarlegu og þrælsúrrealísku myndbandi sem gæti allt eins komið úr heimamyndasafni Davids Lynch. Spólu þessari fylgir sá hvimleiði galli að þeim sem horfa á hana er tilkynnt það símleiðis strax að glápi loknu að þeir eigi aðeins eftir að lifa í sjö daga til viðbótar.
Myndin fer býsna vel af stað. Hún er drungaleg og andrúmsloftið er hlaðið
annarleika sem grefur notalega undan öryggi áhorfandans. Sagan er
áhugaverð, enda fer það aldrei milli mála að spólufjandinn er bráðdrepandi.
Ástæðurnar fyrir því eru hins vegar ekki nógu vel útfærðar og það eru því fyrst og fremst hnökrar á frásögninni sem koma í veg fyrir að myndin nái að hrista upp í áhorfendum og senda þá með alvöru hroll inn í svefninn.
Myndin greinir frá örvæntingarfullri tilraun ungrar blaðakonu (Naomi Watts, önnur gellan úr Mullholland Dr. eftir Lynch) til að leysa
gátuna um myndbandið innan sjö daga og þrátt fyrir að leitin sjálf sé
spennandi þá eru svörin frekar þunn og niðurstaðan langt því frá
fullnægjandi.
Annars er The Ring prýðileg ræma. Naomi Watts stendur sig með ágætum í
hlutverki blaðakonunnar og að vanda gustar af Brian Cox sem er hér í
mikilvægu aukahlutverki.
| 22:24 |