Þriðjudagur, 25. mars 2003
The Hunted

Ţađ ţarf meira til ađ gera góđa bíómynd en ađ hóa saman tveimur frábćrum leikurum og leikstjóra sem var upp á sitt besta fyrir ţrjátíu árum. The Hunted er frekar dapurleg stađfesting á ţessu en hér eiga ţeir allir slćman dag óskarsverđlaunahafarnir Tommy Lee Jones, Benicio Del Toro og leikstjórinn William Friedkin (The French Connection, The Exorcist).
Del Toro leikur hermann sem er sérţjálfađur í manndrápum og er einfaldlega sá besti í sínu fagi. Hann er svona Rambó síns tíma en í stađ ţess ađ vera skemmdur eftir Víetnamstríđi flippar hann eftir allan viđbjóđinn í Kosvo.
Hann fer svo í framhaldinu ađ nota ţekkingu sína til ađ kála veiđimönnum úti í skógi í Bandaríkjunum. Ţađ gengur ekki og mađurinn sem kenndi honum ađ drepa, náttúruunnandinn Lee Jones, er fenginn til ađ elta sköpunarverk sitt uppi og taka úr umferđ.
Ţetta er einhvers konar First Blood meets The Fugitive og framan af minnir ţetta allt saman á First Blood nema Rambó var auđvitađ
ekki vondur og ţađ er auđvitađ spurning hvort Del Toro sé vondi kallinn en tvöfeldni persónu hans er afar illa framsett og ein helsta brotalöm myndarinnar. Rétt eins og í gömlu Stallone myndini berst eltingarleikurinn út um víđan völl en hér er ţetta allt svo samhengislaust og brotakennt ađ spennan helst aldrei og hrađinn er ekki nógu mikill til ađ breyđa yfir allar brotalamirnar í handritinu.
Stallone er enginn Del Toro og Richard Crenna er enginn Tommy Lee Jones en First Blood er samt mikđ betri mynd en The Hunted.
| 21:24 |