»  kvikmyndir  »  Meira feigðarflan
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Meira feigðarflan
Fimmtudagur, 27. mars 2003

Final Destination 2

Unglingahrollurinn Final Destination var ekki neitt sérstaklega eftirminnileg mynd en þar sagði frá vinahópi sem slapp fyrir tilviljun við að farast í flugslysi. Það þýddi þó ekki að þeirra biði björt framtíð þar sem Dauðinn sjálfur er víst með einhverja risaáætlun í gangi og þeir sem eru eyrnamerktir honum eiga engrar undankomu auðið og því kallaði hann krakkana til sín í hinum undarlegustu slysum í sömu röð og þeir áttu að deyja í slysinu.
Í fljótu bragði sér maður ekki hvernig nokkrum manni datt í hug að það væri ástæða til þess að gera framhald af myndinni og þess vegna kemur Final Destination 2 skemmtilega á óvart. Hún er nefnilega þrælspennandi og nær upp góðum hrolli, ekki síst með því að tengja aðstæður sem flestum stendur stuggur af dauðanum, ferðir til tannlæknis, barnsfæðingar, sprautur ogöndunarvélar sem bila er eitthvað sem hristir upp í flestum. Þá er Dauðinn einstaklega hugmyndaríkur þegar það kemur að því að koma persónum myndarinnar, sem sluppu við hroðalegt bílsys, í hel og þeir sem kunna að meta slíkt fá nokkra eftirminnilega og flotta splattera.

Tengingarnar við fyrri myndina eru sterkar og margar og virðast í upphafi ætla að vera hallærislegar en þar sem myndin tekur sig mátulega alvarlega tekst þetta ágætlega.
Líksnyrtinn sem veit ýmislegt um Dauðan og hans plön er, sem fyrr, leikinn af Tony Todd (Candyman) og eins og í fyrri myndinni kemur hann með skemmtilega hallærislegt og dæmigert hryllingsinnslag. Þá snýr Ali Larter aftur í hlutverki Clear Rivers, þeirrar einu sem lifði fyrri darraðardansinn af, og lyftir þessu svolítið upp. Flott stelpa sem maður vonar heitt og innilega að takist að snúa á manninn með ljáinn.


| 21:36 |
komment

Já Final Destination 2 segiru.

Titillinn finnst mér merkilegur. Hvað er final og hvað er ekki final skiluru. Hvað næst? Final Destination 3 - More final than final! ?? Final Destination 4 - Beyond Final!!!

Finnst eitthvað súrt og skemmtilegt við að þeir hafi gert framhald af mynd með svo fænal titli.

Nr. 1 | Laugurinn sjálfur | 29.03.2003 | 15:52:32 | [+] |

Mæltu manna heilastur. Þetta er einn mótsagnakenndasti titill sem sögur fara af.

Nr. 2 | Tóti sjálfur | 29.03.2003 | 18:55:49 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff