»  kvikmyndir  »  Tveir vinir og.....æi þið vitið
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Tveir vinir og.....æi þið vitið
Mánudagur, 31. mars 2003

National Security

Það þarf ekki að hafa mörg orð um National Security enda býður hún ekki upp á neitt sem hefur ekki verið gert þúsund sinnum áður í áþekkum myndum. Hún er dæmigerð félagamynd og er auglýst sérstaklega sem félagamynd án félaganna. Það er hins vegar eitthvað sem þarf ekki að taka fram þar sem slíkar myndir ganga einmitt út á það að leiða saman tvo menn sem eiga ekkert sameigilegt og hafa megna andúð hvor á öðrum þar til vondir menn þvinga þá til að snúa bökum saman.

Formúlan hefur lifað góðu lífi allt frá því Jack Lemmon og Walther Matthauvoru upp á sitt besta en seinni árin hefur ekki þótt galið að leiða saman svartan mann og hvítan (48. Hours, Leathal Weapon, The Last Boyscout) með tilheyrandi áhersu á kynjamisrétti.
Það er leikið á þessar nótur með milkum látum í National Security en Martin Lawrence mun seint geta haldið uppi stuðinu í heilli mynd, eins og Eddie Murphy gerði forðum.
Lawrence er átakanlega þreytandi og leiðinlegur leikari en það verður þó að segjast eins og er að hann hefur oft verið verri. Steve Zahn (Out of Sight, Riding in Cars with Boys, Evil Woman, Joy Ride) er hins vegar mikill snillingur og klikkar ekki í hlutverki hálf misheppnaðs aula með hjartað á réttum stað. Hann er það besta við þessa grínspennumynd sem nær hvorki að verða sérstaklega spennandi né fyndin en verður heldur aldrei leiðinleg. Það er því ekkert að því að sitja undir henni hafi maður ekkert betra að gera.
Hinn hundleiðinlegi stóri bróðir hennar Juliu Roberts, sjálfur Eric Roberts, leikur aðalmorðingjann og er bara býsna góður í litlu og ómerkilegu hlutverki.


| 20:40 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff