Laugardagur, 05. apríl 2003
Hrein og bein
Framleiðandi: Krummafilms

Heimildarmyndin Hrein og bein er afskaplega krúttleg og sæt mynd sem öllum ætti að vera hollt og gott að horfa á. Hér koma níu ungmenni fram og segja frá því hvernig það var að koma út úr skápnum og segja fjölskyldu og vinum frá því að þau væru samkynhneigð. Þau eru hvert öðru skemmtilegra og það er ekki annað hægt en að hrífast með þeim og dást að hugrekki þeirra og hreinskilni.
Þau lýsa sálarangistinni sem fylgir því að upplifa sig öðruvísi og verða hornreka vegna kynhneigðar sinnar en eins og eitt þeirra bendir á þá eru auðvitað allir gagnkynhneigðir þangað til annað kemur í ljós. Það skiptast á skin og skúrir í myndinni en björtu hliðarnar eru fleiri enda er léttirinn sem fylgir því að koma út úr skápnum svo mikill að hann verður áþreifanlegur á tjaldinu.
Myndinni er ekki síst ætlað að hjálpa þeim sem velkjast um í vafa og vita ekki í hvorn fótinn þeir eiga að stíga og ég get ekki ímyndað mér annað en hún muni því verða mörgum kærkominn. Þá ætti hún að slá hressilega á fordóma enda eru krakkarnir ekkert öðruvísi en fólk er flest og væntingar þeirra og drauma kannast allir við hjá sjálfum sér; að njóta lífsins, elska, vera elskuð og finna réttan lífsförunaut. Það er ekkert flóknara en það.
Áhrifarík og góð mynd.
| 12:07 |