Miðvikudagur, 02. apríl 2003
Crush

Þrjár vinkonur, skólastjóri, læknir og lögregluforingi, sem eru rétt rúmlega fertugar hittast reglulega og bera saman sorgarsögur sínar af kjötmarkaðnum. Allar eru þær einhleypar og gengur ekkert að krækja sér í nothæfa karla. Skólastjórinn syngur í kirkjukór og kynnist þar 25 ára gömlum orgelleikara sem hún hafði kennt í barnaskóla 10 árum áður. Þau byrja að sofa saman og skólastýran dapurlega tekur hnútinn úr hárinu og fer að geisla af gleði og fullnægju.
Líkamlegt samband þeirra verður fljótt ansi tilfinningaþrungið og þau ákveða að gifta sig. Vinkonunum finnst þetta alveg galið og reyna allt sem þær geta til þess að koma vitinu fyrir vinkonuna enda eru þær harðákveðnar í því að hún sé að gera stór mistök með því að falla fyrir unglingi.
Afskiptasemi þeirra á eftir að hafa skelfilegar afleiðingar og tilfinningaríkir áhorfendur komast varla hjá því að finna til með persónunum og fella nokkur tár.
Þessi mynd á það sameiginlegt með Four Weddings and a Funeral , og er því óhjákvæmilega borin saman við hana, að í henni er boðið upp á brúðkaup, jarðarfarir og Andie McDowell. Að öðru leyti eiga þær fátt sameiginlegt og hér eru undirtónarnir miklu alvarlegri.
Það er bæði hlegið og grátið og ef flækjan væri ekki leyst á full einfaldan og krúttlegan hátt (klíp hálfa stjörnu af henni fyrir þetta en annars er þetta þriggja stjörnu mynd)hefði myndin verið miklum mun mannlegri og sterkari. Það breytir því þó ekki að hér er á ferðinni fyrirtaks fertugskrísumynd sem flestur ættu að hafa gagn og gaman af þó hún sé vitaskuld þvottekta konumynd.
| 20:47 |