»  kvikmyndir  »  Kínverskur kúreki í London
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Kínverskur kúreki í London
Þriðjudagur, 08. apríl 2003

Shanghai Knights

Það verður ekki af þeim félögum Jackie Chan og Owen Wilson tekið að þeir eru skemmtilegir þannig að það er eiginlega ekki hægt að láta sér leiðast yfir Shanghai Knights. Chan er hér á kunnuglegum slóðum og söguþráðurinn er hálfgert ljósrit af öðrum myndum hans og skyldleikinn við aðra vinsæla framhaldsmyndaseríu hans kennda við Rush Hour er tildæmis augljós.
Eini munurinn er sá að Rush Hour myndirnar gerast í samtímanum og þar sér svarti spaugarinn Chris Tucker um að halda uppi stuðinu með honum. Wilson er svo aftur bæði skemmtilegri og meira sjarmerandi en Tucker þannig að þó maður sé löngu búinn að fá sig fullsaddan af Chan að slást með stigum, regnhlífum og öðrum búsáhöldum þá leiðist manni aldrei á meðan hinn margnefbrotni Wilson kemur með heilbrigt mótvægi og mátulegan fíflagang.

Sagan er ekki upp á marga fiska, enda aukaatriði í myndum á borð við þessa. Slagsmálin og grínið eru aðalmálið og þar gengur allt upp. Þeir félagar þurfa að koma í veg fyrir heilmikið samsæri í London á tímum Viktoríu drottningar og ýmsar þekktar persónur skjóta upp kollinum, m.a. Jack the Ripper, Arthur Conan Doyle og sjálfur Charlie Chaplin. Þáttur þessara ágætu manna þolir vitaskuld enga söguskoðun en býður upp á ágætis brandara auk þess sem það er eitthvað póstmódern við þetta þar sem Jackie Chan hefur verið eyrnamerkur Chaplin nýrra tíma.


| 23:32 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff