»  kvikmyndir  »  Vondur titill - slöpp mynd
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Vondur titill - slöpp mynd
Þriðjudagur, 29. apríl 2003

Bulletproof Monk

Það hvarflar nú varla að manni að mynd sem ber titilinn Skotheldur munkur geti verið góð. Það er eitthvað svo yfirmáta hallærislegt við þessa yfirskirft að innihaldið getur ekki verið upp á marga fiska. Það er því ekki hægt að skammast yfir því að Bulletproof Monk sigli undir fölsku flaggi. Nafn myndarinnar er asnalegt og að er myndin líka.
Hinn annars ágæti leikari Chow Yun Fat leikur hér Tíbetmunk sem kann að slást eins og hetjurnar í Chrouching Tiger, Hidden Dragon og Matrix, þannig að við fáum nóg af karate sem er óháð þyngdarlögmálinu. Hann er verndari gamallar bókrullu sem er þeim göldrum gædd að sá sem les hana verður almáttugur. Gamall nasisti vill öðlast þetta vald og nota það í þjóðernishreinsunum og þess vegna fáum við að fylgjast með eltingarleik munks og nasista í San Fransisco nútímans. Far out.

Þetta er auðvitað galið, eins ogmyndin öll, en kemur ekkert að sök þar sem slagsmálin og hasarinn ásamt niðursuðudósaheimspeki munksins og amerísks félaga hans er það sem allt snýst um. Það verður samt bara að segjast eins og er að þeir þættir eru ekki nógu vel útfærðir og skemmtilegir til þess að maður geti notið herlegheitanna. Hér er hverri hasamyndaklisjunni smurt ofan á aðra og þegar maður er búinn að sjá fyrstu 10 mínúturnar er maður eiginlega búinn að sjá myndina alla.
Yun Fat og Seann William Scott eru skemmtilegir leikarar og það drepur mann ekkert að fylgjast með samspili þeirra. Það fer auðvitað Fat betur að bregða brandi, eins og hann gerði iðulega undir stjórn Johns Woo, en slást og þessi mynd er fyrir vikið sú alversta sem hann hefur komið nálægt frá því hann kom funheitur frá Hong Kong. Scott hefur leikið lúða á færibandi í unglingamyndum en tekst hér ágætlega upp í hasarnum. Skemmtilegur náungi.


| 22:21 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff