»  kvikmyndir  »  28 dagar hinna lifandi dauðu
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
28 dagar hinna lifandi dauðu
Fimmtudagur, 01. maí 2003

28 Days Later

Leikstjórinn Danny Boyle hóf feril sinn í kvikmyndum með miklum
krafti með myndunum Shallow Grave og Trainspotting en tókst ekki að fylgja þeim eftir sem skyldi með A Life Less Ordinary og hinni misheppnuðu The Beach. Hann virðist þó vera kominn í gamla formið aftur og 28 Days Later er einn sá allra besti hryllingur sem sést hefur í bíó síðustu misserin.
Hún er hreint út sagt sælgæti fyrir þá sem kunna að meta mátulega subbulegan hroll enda vísar hún markvisst í klassískar dómsdagsmyndir á borð við The Night of the Living Dead, Mad Max og The Omega Man.

Banvænn og bráðsmitandi vírus sleppur laus í Bretlandi en hann hefur þau hvimleiðu áhrif á fólk að það umbreytist á nokkrum sekúndum í morðóðar og heiladauðar skepnur sem eru skemmtilega náskyldar gömlu uppvakningunum hanns George A. Romero. Þeir örfáu sem sleppa við sýkingu berjast vonlítilli baráttu fyrir lífi sínu. Þrátt fyrir áhersluna á blóðsúthellingar og líkamlegan viðbjóð finnur Boyle, rétt eins og Romero, í uppvakningamyndunum, samt pláss fyrir tilfinningar persónanna og vangaveltur um eðli mannsins sem þarf auðvitað, frekar en fyrri daginn, ekkert endilega á veirusýkingu að halda til þess að breytast í skepnur og brytja náungann í spað.


| 11:22 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff