Þriðjudagur, 27. maí 2003
City by the Sea

Það hefur háð Robert De Niro nokkuð síðustu árin að hann hefur getað leikið lítið annað en Robert De Niro með tilheyrandi grettum og augngotum. Hann er þó að standa sig ágætlega í City by the Sea í hlutverki fyrirmyndarlöggunnar Vincent LaMarca og getur meira að segja stundum fengið mann til að gleyma því að hann sé fyrst og fremst Robert De Niro.
Þetta einfalda hlutverk virðist þó vefjast fyrir þessum stórleikara á köflum, ekki síst þegar mannlega dramað nær hámarki.
Myndin er frekar mannlegur harmleikur en spennumynd og virkar ágætlega sem slík. LaMarca er ofsóttur af skuggum fortíðar sem hellast yfir hann þegar sonur hans, sem hann yfirgaf mörgum árum áður, fremur morð í eiturlyfjavímu. Heiðarlega löggan lendir í kjölfarið í meiriháttar tilvistarkreppu og einfaldur heimur hennar hrynur til grunna.
City by the Sea er því vitaskuld ansi drungaleg og niðurdrepandi á köflum en verður aldrei leiðinleg enda tekst einhvern veginn að vekja samúð áhorfandans með vonlausum persónunum og það er alltaf huggun harmi gegn að þegar botninum er náð liggur leiðin upp á við.
Leikararnir standa sig almennt með prýði. Frances Mc Dormand er alltaf heillandi og kann þetta allt og Eliza Dushku (Faith úr Buffy þáttunum) er flott stelpa. Senuþjófur myndarinnar er hins vegar hinn ágæti skúrkaleikari William Forsythe sem bætir einu fyrirmyndarskítseiðinu í hnappagatið.
| 11:09 |