»  kvikmyndir  »  Matrix 6.0
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Matrix 6.0
Laugardagur, 17. maí 2003

The Matrix Reloaded

matrix

The Matrix Reloaded er, eins og við var að búast, heilmikil veisla fyrir augað og þeir sem heilluðust af stílfærðum og frumlegum bardögum fyrstu myndarinnar fá heimikið fyrir sinn snúð og nokkur atriðin eru hrein unun að horfa á. Það þarf auðvitað ekki að taka það fram að útlitið er óaðfinnalegt og búningar og allt þess háttar er í toppklassa.
Þá standa flestir leikararnir sig með prýði; Carrie-Anne Moss er ferlega flott, Jada Pinkett er svöl, Monica Bellucci er æði, Fishburne er mesti töffarinn og Hugo Weaving rúlar í hlutverki Agent Smith. Keanu Reeves er slappur utan Matrixins en þrælvirkar í sýndarveruleikanum.

Það sem háir þessari miðjumynd er hins vegar það að það er voðalega lítið nýtt að gerast. Þetta eru meira og minna sömu Matrix taktarnir, bara í stærri og meiri skömmtum sem er svo sem allt í lagi enda væri það líklega frekja að ætlast til þess að Wachowski bræður toppuðu sig í framhaldsmyndinni. Það er öllu verra að keyrslan hér er ekki nærri því jafn þétt og í fyrstu myndinni, aðallega þar sem þeir bræður falla í sömu gryfju og George Lucas í seinni Star Wars bálkinum og myndast við að troða pólitík, þingfundum og öðru þess háttar inn í atburðarásina. Þetta hægir verulega á myndinni og gerir það óhjákvæmilega af verkum að hún virkar á köflum langdregin, sem er ekki gott þegar verið er að fylgja snilldarstyki á borð við The Matrix eftir.
Þá er myndin drekkhlaðin af trúarlegum og heimspekilegum vangaveltum. Þær þjóna þó vissulega tilgangi sögunnar en þriðja myndin verður að skera úr um hvort The Matrix gangi upp sem tilvistarheimspekilegur hasarþríleikur. Langt og leiðinlegt dans- og kynlífsmyndband í anda MTV er ekki alveg að virka og það þarf varla að hamra svona rosalega á því að í raun eru Neo og félagar að berjast fyrir þeim sjálfsögðu mannréttindum að dansa og ríða.
Það getur sem sagt enn brugðið til beggja vona en útlitið er gott og ég spái miklu fjöri í haust. Klikki Matrix Revolutions hins vegar verður Matrixins líklega fyrst og fremst minnst fyrir fyrsta kaflann sem verður seint toppaður.


| 16:07 |
komment

Það er einhver Stephen Glass bragur á þessari gagnrýni hans Tóta. Hringdi í Gunnar Smára og hann sagði, "Nei, hér vinnur enginn horaður blaðamaður með hálfmána. Stebbi sér um alla rýni fyrir okkur, enda vandaður og góður drengur."

Nr. 1 | Refurinn Loki | 17.05.2003 | 18:21:59 | [+] |

Hvað ert þú að fara Loki? Má búast við Jayson Blair-type sögu á Fbl?

NYT var með smá umfjöllun um Hafið í gær. Þeir fara mjög varlega í þetta en eru algerlega sammála dómi Organistans að allar persónur myndarinnar fari með hlutverk Refsins Loka. Eins og Stephen Holden orðar það svo vel:

"The film's flamboyant portrayals of characters you love to hate have a malicious comic edge. If ever there were a movie to gladden the hearts of misanthropes, this is it."

Hann fer einnig með silkihönskum um flöktið í myndinni þar sem Gunnar Eyjólfsson heldur að hann sé að leika King Lear í Þjóðleikhúsinu en restin af leikurnum halda að þeir séu í "Meet the Parents":

"Depending on your estimation of human nature, Baltasar Kormakur's film "The Sea," which opens today in Manhattan, is either a grimly amusing comedy steeped in gallows humor or one of the bitterest family dramas ever shoveled onto the screen."

Tóti, áttu þér ædól þegar kemur að kvikmyndagagnrýnendum?

ok, Heiða næturvörður var að koma í tölvuna mína og sagðist ætla að vera með mér í kvöld! Hún er búinn að segja "sem sagt", "bara" og "þá hérna" -- og búinn að spila Abba lag. Röddin hennar Heiðu er í uppáhaldi hjá Organista í útlegð.

Nr. 2 | Organistinn | 17.05.2003 | 22:22:49 | [+] |

Pauline Kael skrifaði einu sinni í NYT að besti gagnrýnandi sem hún hefði lesið væri einmitt Tóti. Að vísu hefði Tóti þá óvenjulega aðferð að skrifa þetta alltaf í bíómyrkirinu á ælupoka eða servíettur.

Nr. 3 | Refurinn Loki | 18.05.2003 | 14:31:48 | [+] |

1993, eftir ad Kaelin haetti a New Yorker, byrjadi Bretinn Anthony Lane ad skrifa gagnryni thar. Hann er bradsnjall og sennilega arftaki Kaelin. Kaupir Baugur ekki New Yorker fyrir ykkur tharna a kultur deild Fbl? Gomul kritik fra Lane er lika til i bok, Nobody's Perfect. Thetta er bok sem Refurinn Loki hefur lesid spjaldanna a milli til ad stela frosum ur.

Nr. 4 | Organistinn | 18.05.2003 | 21:14:25 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff