Mánudagur, 16. júní 2003
2Fast2Furious

The Fast and The Furious var ekkert sérstaklega merkileg mynd en bauð upp á flotta bíla, mikinn hraðakstur, svalar gellur og ægilega töffara með sjálfan Vin Diesel í broddi fylkingar.
Handritið var handónýtt, sagan slöpp og samtölin í besta falli hallærisleg. Þetta kom þó ekki að sök endaskipta þessir þættir ekki nokkru einasta máli í myndum af þessu tagi. Hraðinn skiptir öllu og ef keyrslan er nógu mikil heyrist tómahljóðið ekki fyrir vélarhljóðum og byssugelti.
Í þessari framhaldsmynd fáum við meira af ævintýrum löggunnar úr fyrri myndinni, Brian O'Conner, þar sem Diesel kaus að láta það eiga sig að vera með. Það er skemmst frá því að segja að hans er ekkert sérstaklega saknað og þessi mynd stendur fyllilega fyrir sínu án hans.
Paul Walker sem FF átti að gera að stjörnu fær að gera sig breiðari. Hann er að vísu það slappur að það er enginn hætta á að 2F2F geri það sem fyrri myndin gerði fyrir Diesel.
Þegar hér er komið við sögu er búið að reka O´Conner úr löggunni fyrir að hafa leyft Diesel að sleppa í lok fyrri myndarinnar. Hann brunar því um götur Miami og safnar hraðaksturssektum hraðar en íslensk meðalfjölskylda safnar skuldum. Honum býðst síðan óvænt að gera yfirbót með því að aðstoða yfirvöld við að leysa upp eiturlyfjahring með hraðakstri. Meira þarf ekki að segja um söguþráðinn enda er bara gefið í og hvergi slegið af.
Meira þarf ekki að segja um söguþráðinn enda er bara gefið í og hvergi slegið af.
Kappakstursatriði myndarinnar eru mörg hver afskaplega vel útfærð og æsileg þannig að þeir sem kunnu að meta fyrri myndina fá nóg fyrir peninginn auk þess sem stelpurnar eru fleiri og fáklæddari og töffararnir ýktari. Þeir sem sækjast eftir vitrænni afþreyingu ættu hins vegar að sitja heima eða leita á önnur mið.
| 10:15 |