Mánudagur, 30. júní 2003
Phone Booth

Colin Farrell ţarf ađ dúsa í símaklefa í um ţađ bil 80 mínútur í Phone Booth eftir ađ hann slysast til ađ svara hringingu frá klikkađri leyniskyttu sem hótar ţví ađ drepa hann yfirgefi hann klefann. Höfuđlausn Farrels felst í ţví ađ játa áhuga sinn á ungri leikkonu fyrir eiginkonu sinni. Geri hann ekki ţessa yfirbót fćr hann kúlu í hausinn. Skyttan hefur áđur drepiđ barnaníđing og innherasvindlara ţannig ađ manni finnst nú brot hins ólánssama syndasels frekar lítilfjörlegt ţar sem hann hafđi ekki einu sinni afrekađ ţađ ađ sofa hjá vćntanlegu viđhaldinu sem hann hringir í á hverjum degi úr ţessum símaklefa dauđans.
Hugmyndin ađ baki Phone Booth er ágćt og myndin heldur ţrćlgóđum dampi fram ađ hléi en ţá lendir fléttan í bölvuđum ógöngum og hallćrislegur endirinn sýnir svo ekki verđur um villst ađ ţessi snjalla hugmynd var aldrei hugsuđ til enda.
Ódýr lausnin situr eftir í manni og grefur undan góđum fyrri hlutanum ţannig ađ ţrátt fyrir ágćtis viđleitni veldur myndin vonbrigđum.
Farrell nýtur sín ágćtlega í hlutverki syndarans iđrandi og Forrest Whittaker er alltaf jafn sjarmerandi í hlutverki lögregluforingja sem reynir ađ átta sig á undarlegri hegđun ruglađa mannsins í símaklefanum. Ţá er Kiefer Sutherland í góđum gír sem morđinginn. Hann sést nánast ekki neitt en kann greinilega ađ beita röddinni í síma.
| 13:35 |