Miðvikudagur, 23. júlí 2003
The Terminator 3: Rise of the Machines
[3-1/2]
Ţriđja Tortímandamyndin stendur forverum sínum nokkuđ ađ baki en er engu ađ síđur alveg fyrirtaks hasarmynd. Leikstjórinn Jonathan Mostow fékk ţađ vafasama verkefni ađ leysa James Cameron af hólmi en sá hrokagikkur og vinnualki skóp Tortímandann á sínum tíma og gerđi bćđi Arnold Schwarzenegger og leđurklćdda vélmenniđ ódauđlega í fyrstu myndinni áriđ 1984. Mostow leysir máliđ einfaldlega međ ţví ađ keyra allt í botn og ţađ er varla hćgt ađ finna dauđan punkt í myndinni eftir ađ bćđi vélmenninn, nýja morđtóliđ T-X og gamla T-800 módeliđ sem er nú aftur í hlutverki verndarans, lenda í samtímanum.
Eltingarleikirnir eru spennandi og mannvirkjum er rústađ á stórfenglegan hátt međ reglulegu millibili ţannig ađ engum ćtti ađ leiđast. Ţađ er einnig vel til fundiđ ađ láta nýjasta morđtóliđ vera í konulíki og Kristönnu Loken tekst vela đ vera sćt, sexí, köld og svipbrigđalaus allt í senn.
Hún bćtir hins vegar ekki milu viđ flotmálmsróbotinn (T-1000) sem Robert Patrick lék í mynd númer tvö og mér fannst einhvern veginn stafa meiri ógn af honum.
Ţađ lyftir ţessari nýju mynd aftur á móti upp ađ hún er fyndinn á köflum og ţar munar mest um ađ vöđvabúntiđ Schwarzenegger hefur húmor fyrir sjálfum sér og viđfangsefninu og einhvern veginn sér mađur hann og Tortímandann í öđru ljósi eftir ađ hann stelur leđurdressi frá klístrađri karlkynsfatafellu. Ţađ er auđvitađ tímanna tákn ađ ţađ sé mýkt í karlkynshörkutólinu og óslökkvandi drápseđli í kaldri konunni.
Claire Daines kemur sterk inn sem unnusta frelsishetjunnar tilvonandi, Johns Connor, og er verđugur arftaki Lindu Hamilton sem var í miklum vígamóđ fyrir 12 árum. Veikasti hlekkurinn í ţessari annars ţrćfínu spennumynd er Nick Stahl sem er ósvalur og frekar lummó í hlutverki Connors. Framleiđendurnir hefđu miklu frekar átt ađ veđja á fyllibyttuna og brjálćđinginn Edward Furlong sem gerđi persónunni ţrćlgóđ skil í síđustu mynd.
Endir myndarinnar kemur skemmtilega á óvart og er alveg bráđsniđugur. Öllu er ţó vitaskuld haldiđ galopnu fyrir framhald og Schwarzenegger gamli útilokar ekki ađ hann muni hitta John Connor aftur, á öđrum stađ og öđrum tíma viđ ađrar ađstćđur og miđađ viđ kraftinn sem enn er í ţessum myndabálki ćtti sú endurkoma ađ vera ađdáendum austurríska tröllsins og morđóđra vélmenna kćrkomin.