Angelina er æði en...
Sunnudagur, 24. ágúst 2003
Lara Croft Tomb Raider The Cradle of Life
[2]
Það liggur einhvern veginn í augum uppi að hasarmynd sem ber undirtitlilinn Vagga lífsins hlýtur að vera á villigötum. Fyrri myndin um grafarræningjann föngulega Löru Croft var óttaleg della en það kom ekki að sök þar sem glæsikvenndið Angelina Jolie fór létt með að halda myndinni uppi með því að spranga um í þröngum eða klæðalitlum fötum, sveifla byssum og vera rosalega töff.
Söguþráður þessarar myndar er enn meiri steypa og er lítið annað en samhengislaus hrærigrautur úr um það bil 20 James Bond myndum og ævintýrum Indiana Jones þar sem Lara hendist heimshornanna á milli í leit að dularfullri diskókúlu sem getur opnað Pandóruboxið goðsögufræga sem mun kalla hörmungar og farsóttir yfir heimsbyggðina.
Angelina Jolie er sem fyrr æðisleg en það er komin einhver þreyta í Löru og henni tekst ekki að koma í veg fyrir það að manni leiðist á köflum og þó hún sé flottari en allir Englarnir hans Kalla samanlagt standa stílfærð
bardagatrið myndarinnar Englunum og öðru sem verið er að gera í þessari deild um þessar mundir langt að baki.
Þessi atriði eru vitaskuld það sem aðdáendur Löru og Angelinu vilja sjá og þau eru því miður of fá núna og Jolie fær ekki að njóta sín sem skyldi þannig að myndin getur ekki annað en valdið hörðustu nördum og aðdáendum leikkonunnar vonbrigðum.
| 13:59 |