Sunnudagur, 24. ágúst 2003
28 Days Later
[4]
Það hefur ríkt skortur af góðum hryllingsmyndum á undanförnum árum og kvikmyndagerðarmenn hafa, að því er virðist, ekki áhuga á að sinna þessari ágætu kvikmyndagrein með öðru en innantómum unglingahrollvekjum. 28 Days Later er því velkomin tilbreyting en hér er á ferðinni einn sá allra besti hryllingur sem sést hefur í bíó síðustu misserin.
Myndin var sýnd í nokkra daga á kvikmyndahátíð í vor og þeir sem misstu af henni þá ættu ekki að klikka á því aftur þar sem hún er sælgæti fyrir þá sem kunna að meta mátulega subbulegan hroll enda vísar hún markvisst í klassískar dómsdagsmyndir á borð við The Night of the Living Dead, Mad Max og The Omega Man.
Banvænn og bráðsmitandi vírus sleppur laus í Bretlandi en hann hefur þau hvimleiðu áhrif á fólk að það umbreytist á nokkrum sekúndum í morðóðar og heiladauðar skepnur sem eru skemmtilega náskyldar gömlu uppvakningunum hans George A. Romero. Þeir örfáu sem sleppa við sýkingu berjast vonlítilli baráttu fyrir lífi sínu og þrátt fyrir áhersluna á blóðsúthellingar og líkamlega viðbjóð finnur Danny Boyle, rétt eins og Romero í uppvakningamyndunum, samt pláss fyrir tilfinningar persónanna og vangaveltur um eðli mannsins sem þarf auðvitað, frekar en fyrri daginn, ekkert endilega á veirusýkingu að halda til þess að breytast í skepnur og brytja náungann í spað.
| 13:51 |