»  kvikmyndir  »  Ó, ó, óbyggðaferð
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Ó, ó, óbyggðaferð
Fimmtudagur, 07. ágúst 2003

Wrong Turn
[2]

Unglingahrollvekjuformúlan er líklega sú ofnotaðasta í bíóbransanum en menn munu seint þreytast á því að dæla út myndum um fallega unglinga sem stunda kynlíf, drekka, reykja dóp og er svo slátrað af geðveikum morðingjum eða skrímslum fyrir vikið.
Scream myndirnar hökkuðu formúluna í spað á sínum tíma og einhverjir töldu að í kjölfar þeirra myndi þessi kvikmyndagrein taka breytingum. Það er hins vegar allt komið í sama farið, formúlan lifði háðið af og barmmiklar stúlkur í flegnum bolum eru aftur farnar að þvælast afsíðis einar síns liðs og öskra af lífs og sálarkröftum þegar morðinginn skýtur upp kollinum.

Wrong Turn bætir engu nýju við það sem þegar hefur verið gert í þessari deild en hér villast fimm ungmenni í óbyggðum og lenda í klónum á þremur úrkynjuðum sveitalúðum sem finnst fátt skemmtilegra en að brytja fólk í spað. Gagnrýnanda kvikmyndatímaritsins Empire
tókst vel að lýsa myndinni í einni setningu þegar hann sagði að leikstjórinn hefði greinilega leigt Texas Chainsaw Massacre, horft síðan á Deliverance og kíkt aðeins á Friday The 13th. Það þarf svo sem ekki að segja meira en það er þó rétt að geta þess að þrátt fyrir ófrumleikan er myndin snyrtilega gerð og nær á köflum upp ágætis spennu þannig að þeir sem kunna að meta myndir af þessu tagi ættu að fá blóðþorstanum svalað.

Desmond Harrington er hæfileikalítill og sjarmalaus leikari en gerir sitt besta til að bjarga fögrum fljóðum frá morðhundunum en er jafn lélegur og hann var í hinni slöppu draugamynd Ghost Ship. Eliza Dushku er hressari í hlutverki aðalgellunnar. Hún öðlaðist frægð fyrir að lífga upp á Buffyþætti sem hin skæða Faith og satt best að segja hefði maður nú reiknað með því að hún kæmi kröftugri inn miðað við frammistöðuna þar.


| 20:12 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff