Sunnudagur, 17. ágúst 2003
Sinbad: Legend of the Seven Seas
[3]
Hinn goðsagnakenndi sæfari Sinbad lærir mikilvæga lexíu í þessari nýjustu teiknimynd frá DreamWorks og leggur sjálfselsku og græðgi til hliðar og lætur ástina og hjatað ráða för. Allt gott og blessað með það og boðskapurinn hollur og góður ungum sálum sem eiga auðvelt með að hrífast með enda Sinbad hress og sjarmerandi gaur sem lendir í æsispennandi ævintýrum.
Myndin er vönduð og vel gerð og það er nánast offramboð af kyngimögnuðum skrímslum sem rífa myndina upp úr rómantíkinni með reglulegu millibili og skjóta litlum hjörtum skelk í bringu. Forynjurnar eru flest handbendi
gyðjunnar Erisar sem hefur horn í síðu kappans og leggur sig alla fram um að steypa honum og vinum hans í glötun. Skemmtileg og þokkafull persóna sem sver sig í ætt við frænkur sínar í Odysseifskviðu. Þá er vinkona Sinbads, Marina, einnig hinn mesti kvennskörungur þannig að það er enginn skortur á máttugum meyjum í myndinni.
Það vantar samt einhvern neista í myndina þannig að þeir sem eru komnir til vits og ára fara hálf innantómir af henni en það hefur verið styrkur bestu teiknimynda síðustu ára að þær hafa glatt bæði unga sem aldna.
Þetta er þó algert aukaatriði þar sem krakkarnir fá mikið fyrir sinn snúð en bíósumarið hefur verið frekar magurt fyrir þau þannig að ævintýri Sinbads eru kærkomin tilbreyting.
| 18:37 |