Uppgjafatöffari í vondum málum
Laugardagur, 16. ágúst 2003
Hollywood Homicide
[2]
Harrison Ford er töffari sem eldist hræðilega illa og í dag er hann svo fýldur og sjarmalaus að það er með ólíkindum að hann hafi á árum áður heillað heilu kynslóðirnar í hlutverkum Han Solo og Indiana Jones. Þegar hann var upp á sitt besta fór hann létt með að bera heilu myndirnar uppi en í dag getur hann engu bjargað eins og sannast best í Hollywood Homicide.
Hér leikur hann reynda rannsóknarlögreglu sem er með allt niður um sig í fjármálunum og reynir að hafa aukatekjur af fasteignasölu. Þetta gæti verið sniðugt en er það ekki hér. Josh Hartnett leikur óreyndan félaga hans og stendur sig með eindæmum illa í hlutverkinu. Tvíeykið er sem sagt ekki til stórræðanna líklegt en fær þó það verkefni að hafa uppi á morðingjum heillar rapphljómsveitar.
Handrit myndarinnar ein allsherjar hrærigrautur úr helstu fléttum og klisjum úr löggufélagamyndum síðustu áratuga. Hún kemur því aldrei á óvart og þeir sem þekka vel til þessara kvikmyndagreinar ættu að geta raðað öllum brotunum saman og reiknað endinn út vel fyrir hlé.
Hollywood Homicide er því bæði langdregin og óspennandi en tekur blessunarlega smá fjörkipp í lokin. Þar fer þó meira fyrir gríni en spennu og svo einkennilega vill til að það er Harrison Ford sem nær nokkrum sinnum að laða fram bros en það er líklega fyrst og fremst vegna þess hversu hann er ömurlegur og brjóstumkennanlegur við þessar aðstæður.
| 13:09 |