»  kvikmyndir  »  Eðalmannskapur í miðlungsmynd
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Eðalmannskapur í miðlungsmynd
Mánudagur, 15. september 2003

The League of Extraordinary Gentlemen
[3]

Það blandast engum sem lesið hefur teiknimyndasögur Alans Moore hugur um að þar er snillingur á ferð. Hann gerði Jack the Ripper frábær skil í doðrantinum og stórvirkinu From Hell og í The League of Extraordinary Gentlemen leiddi hann saman þekktar persónur úr afþreyingarbókmenntum síðustu árhundruða.
Útkoman var frábær enda getur það varla klikkað að fá Alan Quatermain , úr Námum Salómons konungs, Nemo skipstjóra, Minu Harker úr Dracula, Ósýnilega manninn og lækninn Henry Jekyll, sem á það til að breytast í skrímslið herra Hyde, til þess að bjarga heimsbyggðinni úr klóm hins illa.
Það hlaut því að koma að því að hugmyndasnautt Hollywoodliðið tæki hugmynd Moores upp á sína arma og kæmi úrvalsliðinu á hvíta tjaldið.

The League of Extraordinary Gentlemen er í sjálfu sér, rétt eins og From Hell, ágætis bíómynd en báðar eru þær þó móðgun við verk Moores. Úrvinnslan á frábærum efniviðnum er ófullnægjandi í báðum tilfellum og við sitjum því uppi með miðlungsmyndir byggða á frábæru efni.
Horfi maður fram hjá þessu er hins vegar hægt að skemmta sér ágætlega yfir The League. Brellurnar eru flottar og þetta er heilmikð þrjúbíóævintýri. Sean Connery er með flottari gamalmennum og gerir Quatermain fín skil, Ósýnilegi maðurinn sér um að halda húmornum uppi en annars er Stuart Townsend aðal senuþjófurinn í hlutverki hins fláráða Dorian Gray.
Gray er að vísu ekki í upprunalega hóp Moores en tekur sig samt vel út í þessum félagsskap. Tom Sawyer er aftur á móti boðflenna sem hefði betur látið sig vanta en þar sem þetta er Holywoodframleiðsla verður að sjálfsögðu að vera í það minnsta einn Ameríkani í hetjuliðinu.
Söguþráður myndarinnar er bjánalegur fram úr hófi og á tímabili lítur út fyrir að bullið ætli að ríða The League á slig, enda hefur myndin fengið slæma dóma erlendis. Þar eru menn þó full óvægnir, væntanlega vegna réttlátrar reiði fyrir hönd Moores. Þeir sem kunna að meta hressileg ævintýri ættu ekki að láta þessa gagnrýni aftra sér frá því að kíkja á þennan eðalmannskap í bíó. Það breytir því þó heldur ekki að ef men hefðu haldið sig við sögu Moores hefði myndin geta orðið perla í svínafóðrinu sem borið hefur verið á borð fyrir bíógesti í sumar.


| 10:56 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff