Sunnudagur, 21. september 2003
Bad Boys II
[2]
Hasarmyndin Bad Boys kom leikstjóranum Michael Bay og leikurunum Will Smith og Martin Lawrence á kortið. Bay hefur verið að sprengja hluti í tætlur fyrir framleiðandann Jerry Bruckheimer síðan þá, Smith hefur átt misgóða daga en leiðin hefur legið stöðugt niður á við hjá Lawrence. Það þarf því engan að undra að leikararnir hafi viljað hverfa aftur til fortíðar og endurtaka leikinn frá 1995.
Þeir sem kunnu að meta þá mynd vita upp á hár að hverju þeir ganga í Bad Boys II enda hefur Bay ekki séð ástæðu til að breyta formúlunni sem samanstóð af hrærigraut spennu og gríns. Hann kann fátt annað en að drepa fólk með látum, sprengingum, árekstrum, skotbardögum og öðru slíku.
Sagan er þynnri og ófyndnari en í fyrra skiptið og hafi einhver neisti verið á milli aðalleikarana árið 1995 þá er hann dauður nú.
Bay breiðir yfir þessa galla með því að stíga allt í botn þannig að önnur eins keyrsla hefur ekki sést í bíó lengi. Þetta skilar tilætluðum árangri framan af og maður unir sæll við sitt þó maður viti varla hvað sé í gangi.
Bay gengur þó því miður of langt og þegar Miami löggurnar fara í herleiðangur til Kúbu er manni öllum lokið. 147 mínútur af innihaldslausum sprengingum, byssubardögum, fáklæddum gellum og testósteróntröllum að hnykla vöðvana er
bara of mikið af því góða.
| 23:16 |