Föstudagur, 24. október 2003
Mótmćlandi Íslands
[4]
Helgi Hóseasson er fyrir löngu orđinn gođsögn í lifenda lífi fyrir áratugalanga baráttu sína fyrir ţví ađ fá skírnarsáttmála sínum rift. Flestir Íslendingar ţekkja nafn hans og vita ađ hann sletti skyri á ţingheim fyrir um ţađ bil 30 árum, en síđan ekki söguna meir og flestir hafa afgreitt hann sem brjálćđing sem enn má ganga ađ vísum á Langholtsveginum međ mótmćlaskilti.
Heimildarmyndin Mótmćlandi Íslands varpar ţví langţráđu ljósi á ţennan kynlega kvist í ţjóđlífinu og ţađ er hreint og klárt glaprćđi ađ missa af henni. Helgi kemur alltaf til dyranna eins og hann er klćddur og hann er svo eđlilegur og blátt áfram fyrir framan myndavélina ađ unun er ađ horfa á.
Ţá fer heldur ekkert á milli mála ađ hér er mikill hugsuđur á ferđ og mótmćli hans og röksemdafćrslur fyrir ţeim eru eins langt frá ţví ađ vera óráđshjal geđveiks manns og hugsast getur. Og ţó Helgi hafi fariđ óhefđbundnar leiđir munu sjálfsagt flestir geta séđ sannleikskorn í málflutningi hans.
Hann er dásamleg persóna, góđhjartađur og hlýr mađur sem fćr nú loksins uppreisn ćru. Yfirbragđiđ getur ţó veriđ hrjúft en mađurinn er óslípađur demantur. Ţennan demant hefur ţeim Ţóru Fjeldsted og Jóni Karli Helgasynitekist ađ slípta til í einlćgri og heiđarlegri mynd sem mun seint líđa ţeim sem á horfa úr minni.
Ég tek samt undir međ Tótu pönk ađ ţađ hefđi mátt fylla betur út í persónulega sögu Helga fyrst athyglinni var beint ađ hjónabandi hans á annađ borđ. Ţađ hefđi vel mátt fella annađ út og skapa ţeim ţćtti veglegra pláss ţar sem myndin er í raun hálftíma og löng eins og hún er.
Gamlar upptökur úr fréttatímum Sjónvarpsins hljóta ađ skemmta MTV kynslóđinni sérstaklega og Mótmćlandi Íslands er alger himnasending fyrir ungt fólk sem hlýtur ađ hrista hausinn yfir undarlegri ţvermóđsku yfirvalda og kerfisins í garđ Helga sem er sjálfsagt pönkari eđa gjörnigalistamađur í augum ćskunnar, miklu fremur en óalandi ţráhyggjumótmćlandi.
Ţetta er mynd sem er öllum holl og ţví um ađ gera ađ drífa sig í bíó og fara svo út ađ mótmćla. Einhverju. Öllu bara.
| 0:24 |