»  kvikmyndir  »  Rómeó og Júlía drekka blóð
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Rómeó og Júlía drekka blóð
Sunnudagur, 05. október 2003

Underworld
[2]

under.gifVampírur eru eitursvalar og eru lífseigustu fyrirbæri hryllingsbókmenntanna enda er eitthvað ómótstæilegt við þær; seiðandi kynþokki, uppreisnarandi; rómantísk einsemd og melankólía þess sem dæmdur er til eilífrar jarðvistar í myrkri.
Varúlfar þvælast jafnan á svipuðum slóðum og blóðsugurnar en eru ekki jafn elegant; hálfgerðir ruddar og vitleysingar. Þessi fyrirbæri eru sem sagt aðall og pöpull afþreyingarmenningarinnar. Þessum fylkingum lýstur saman í Underworld þar sem við fylgjumst með blóðsugunni og varúlfabananum Selenu sem hefur árhundruðum saman elt tunglsjúku skepnurnar uppi og lógað þeim.

Hún lendir því í heljarinnar tilvistarkreppu þegar hún fellur fyrir varúlfi en það þarf ekki að eyða mörgum orðum í það að vampírugengið kann illa við blóðblöndun tegundanna enda kemur á daginn að blóðsugurnar eru hinir verstu rasistar.
Varúlafar og vampírur eru gömlul fyrirbæri og hittast hér í einni elstu sögu allra tíma um elskendurna sem fá ekki að njótast og það er ekkert nema gott um það að segja.
Blóðsugur eru svalar og þegar þær eru komnar í þröngt latex og leður eru þær auðvitað ómótstæðilegar í þokka sínum. Kate Beckinsale er eitursvöl í hlutverki Selenu í umhverfi sem er samansuða úr The Matrix og The Crow.
Bardagarnir eru flottir og keyrslan ágæt en sagan er býsna þvæld og bjánaleg þannig að myndin er fyrst og fresmt fyrir augað og innihaldið stendur ekki undir svölu yfirbragðinu.


| 21:12 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff