»  kvikmyndir  »  Skrattinn giftist ömmu sinni
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Skrattinn giftist ömmu sinni
Þriðjudagur, 21. október 2003

Intolerable Cruelty
[4]

George Clooney og Catherine Zeta-Jones eru fallegt fólk, það verður ekki af þeim tekið, og það fer þeim afskaplega vel að deila hvíta tjaldinu saman. Það er eiginlega miklu meiri hjónasvipur með Zetu-Jones og töffaranum Clooney en henni og ektamakanum Michael Douglas þannig að það var vel til fundið hjá þeim Coen bræðrum að láta skötuhjúin rugla saman reitum sínum í Intolerable Cruelty.

Clooney er hér í hlutverki skilnaðarlögfræðingsins, Miles Massey, sem sérhæfir sig í skotheldum kaupmálum og gætir þess í hvívetna að umbjóðendur sínir sleppi sem best frá hjónabandsuppgjörum. Hann er sjálfur ríkur, myndarlegur og hefur fullkomna stjórn á lífi sínu en er samt innantómur og vansæll. Það vantar eitthvað upp á til að fullkomna hamingjuna. Kannski ástina sem hann hefur lifibrauð af því að lítilsvirða með ofuráherslu á peninga og fasteignir?
Skrattinn hittir svo heldur betur ömmu sína þegar Miles fellur fyrir hinni fláráðu Marylin Rexroth sem hefur það eina takmark í lífinu að giftast ríkum, heimskum manni og féflétta hann í skilnaði. Miles kemur í veg fyrir að Marilyn takist ætlunarverk sitt í fyrstu atrennu þannig að hún beinir hvössum spjótum sínum að honum sjálfum með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.
Myndin tekur góða spretti og er á köflum drepfyndin en þar sem Coen bræður eru séní veldur hún óhjákvæmilega nokkrum vonbrigðum. Heildin er ekki nógu sterk og undarlegir og óþarfir hnökrar á framvindunni trufla flæðið sem tekur hressilega krampakippi ekki síst í frábærlega skemmtilegum og vel skrifuðum samtölum persónanna.
Leikararnir standa sig allir með prýði en senuþjófarnir alræmdu Billy Bob Thornton og Geoffrey Rush eru áberandi bestir og lyfta myndinni á hærra plan í hvert skipti sem þeir láta sjá sig.
Intolerable Cruelty er því hin besta skemmtun þó hún muni sjálfsagt valda einhverjum aðdáendum bræðranna nokkrum vonbrigðum.


| 13:21 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff