»  kvikmyndir  »  Guð úr véllinni
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Guð úr véllinni
Miðvikudagur, 05. nóvember 2003

The Matrix Revolutions
[3]

Trinity.gifThe Matrix sló verðskuldað í gegn árið 1999 enda frábær mynd í alla staði. Í kjölfar velgengninnar lýstu þeir Wachowski bræður yfir að þeir hefðu hugsað The Matrix sem þríleik og framhaldsmyndirnar tvær yrðu teknar upp í einum rykk.
Sagan þvælist heldur betur í miðkaflanum og sem betur fer æsist leikurinn aðeins í síðustu myndinni The Matrix Revolutions en þegar upp er staðið læðist að manni sá grunur að þeir bræður hafi verið að ljúga til um að The Matrix hafi verið hugsuð sem þríleikur frá upphafi. Fyrsta myndin stendur einfaldlega sterkari sem heild, ein og sér, og framhaldsmyndirnar varpa leiðinlegum skugga á forleikinn.

The Matrix Revolutions tekur upp þráðinn þar sem frá var horfið í sumar og nú brýst út allsherjarstríð milli manna og véla og hin ýmsu vandræðaforrit blanda sér í hasarinn. Því miður fer minna fyrir skemmtilegustu persónunum sem kynntar voru til sögunnar síðast, þeim hjónakornum, Persephone og Merovingian, en Agent Smith fer hins vegar létt með að stela senunni og Hugo Weaving fer vægast sagt á kostum í hlutverki forritsins sem er orðið svo öflugt að það ógnar bæði mannheimum og sýndarveruleika Matrixins.
Hér er mikið um sprengingar og læti þannig að manni leiðist ekkert en samt fylgir þessu einhver depurð yfir því að þriðja myndin skuli ekki fylla betur upp í tómarúmið sem niðursuðudósaheimspekivellan skildi eftir sig í millikaflanum.
Þessi mynd gerist meira og minna utan Matrixins sem er ekki gott fyrir Keanu Reeves sem er flottur í sýndarveruleikanum en marflatur þegar hann þarf að tjá tilfinningar í alvörunni.
Flækjan er síðan leyst á ansi ódýran hátt og þeir bræður gæta sín samt á því að halda öllu opnu fyrir frekara framhald. The Matrix verðskuldar þéttari sögulok en þau sem boðið er upp á en það vill svo kaldhæðnislega til að í lokin hittir Neo fyrir einhvers konar guð í vélinni en hugtakið "deus ex machina" notuðu gömlu Grikkirnir um ódýrar lausnir klassísku
harmleikjanna. Það er ómögulegt að segja hvort þetta beri húmor bræðranna vitni og breytir því ekki að endalokin eru ansi klén.


| 21:21 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff