»  kvikmyndir  »  Leit föður að syni
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Leit föður að syni
Sunnudagur, 30. nóvember 2003

Finding Nemo
[4]

shark.gifTölvugúrúin hjá Pixar kunna sitt fag þegar það kemur að gerð skemmtilegra teiknimynda fyrir alla fjölskylduna. Finding Nemo er nýjasta afurð þessara snillinga sem brutu blað í sögu tölvuteiknimynda með Toy Story og fylgdu henni eftir með Monsters Inc, Toy Story 2 og Bug´s Life.

Finding Nemo gefur þessum myndum ekkert eftir og er afskaplega vönduð og litrík enda gerist hún í skrautlegum töfraheimi undir yfirborði sjávar
Þar elst Nemo litli upp, ofverndaður af taugaveikluðum föður sem hefur mátt horfa á eftir eiginkonu og hrognafjöld í rándýrskjaft. Þegar Nemo kemst óvænt undir manna hendur og endar sem skrautfiskur í búri á tannlæknastofu í Sydney verður pabbi gamli að taka á honum stóra sínum og heldur af stað í magnaðan björgunarleiðangur ásamt bláa, skammtímaminnislausa fisknum Dory. Þá byrjar líka fjörið fyrst fyrir alvöru og yngstu áhorfendurnir fá heilmikla rússíbanareið með hákörlum, marglittum, risaskjaldbökum og hungruðum mávum. Alveg hreint meiriháttar stuð.
Söguþráðurinn minnir að vísu full mikið á Toy Story 2 en það kemur þó lítið að sök þar sem það er hvergi slakað á keyrslunni og skrautlegt aukapersónugallerí stelur senunni viðstöðulaust en þar fara fremst í flokki Willem Dafoe í hlutverki hins lífsreynda Gill, sem tekur Nemo undir verndarugga sinn í fiskabúri tannlæknisins, og Ellen DeGeneres sem talar fyrir Dory sem er tvímælalaust besta persóna myndarinnar.
Stærsti kosturinn við myndirnar frá Pixar er vitaskuld að þær skemmta jafn börnum og fullorðnum þannig að það ætti enginn að vera svikin af þessum sundspretti um heimshöfin og það þarf varla að taka það fram að þeir sem eru komnir til vits og ára fá mest út úr ævintýrinu með ensku tali.


| 14:29 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff