»  kvikmyndir  »  Skotgröf dauðans
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Skotgröf dauðans
Sunnudagur, 16. nóvember 2003

Deathwatch
[2]

deathwatch_big.gifHópur breskra hermanna í fyrri heimsstyrjöldinni leggja undir sig þýska skotgröf með lítilli fyrirhöfn enda ekki nema þrír skíthræddir Þjóðverjar til varnar og þeir eru greinilega miklu hræddari við eitthvað annað og meira en nokkra slæpta Tjalla.
Það er því strax ljóst að það er ekki allt með felldu í skotgröfinni sem er yfirfull af skelfilega illa útleiknum líkum. Eini fanginn sem Bretarnir taka á lífi grenjar á Þýsku að þeir verði að koma sér burt ella muni þeir allir deyja.
Bretarnir láta auðvitað ekki segjast og þegar skyggja tekur byrjar krípí draugagangur og hermennirnir fara að týna tölunni.

Deathwatch er ferlega flott og blaut og vonlaus stemningin í gröfinni er í meira lagi áþreifanleg. Það lítur því framan af út fyrir það að fyrirtaks hryllingur sé á ferðinni en eftir því sem sögunni vindur áfram þvælist plottið og það fjarar hratt undan myndinni.
Rökrétt heimsmyndin hrundi auðvitað í þessu stríði og trúin á manninn og hið góða gufaði upp í öllum hryllingnum og ruddi nýrómantískum straumum bölmóðs og dauðadýrkunnar braut í menningu og listum. Þessum punkti er komið ágætlega til skila enda eru hermennirnir sturlaðir menn í guðlausum heimi sem botna hvorki upp né niður í því sem dynur á þeim. Áhorfendur eru illu heilli í sömu sporum og vita því ekkert hvert myndin er að fara með þá.
Hann Jamie, litli, Bell úr Billy Elliot leikur aðalpersónuna Charlie Shakespeare. Hann er unglingsræfill sem laug til um aldur til að komast í herinn. Persónan og leikarinn valda því þó engan veginn að halda myndinni uppi þannig að allt veldur þetta umtalsverðum vonbrigðum. Með meiri og betri úrvinnslu hefði Deathwatch getað orðið brilljant hrollur en það vantar bara því miður allt of mikið upp á.


| 22:54 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff