Sunnudagur, 23. nóvember 2003
Mystic River
[4]
Mystic River er tvímælalaust besta mynd leikstjórans Clint Eastwood frá því hann kom, sá og sigraði með The Unforgiven árið 1992. Gamli karlinn er lágstemmdur og yfirvegaður í þessum harmleik um kynferðislega misnotkun barna, ást, vináttu, traust og morð.
Eastwood heldur þó aftur af áhrifaríkri sögunni og leggur aðaláhersluna á persónurnar og innri átök þeirra. Þessi leið gengur algerlega upp þar sem myndin hvílir á herðum einvalaliðs leikara. Sean Penn, Tim Robbins og Kevin Bacon leika æskuvini sem eru í litlu sambandi en leiðir þeirra liggja saman á ný þegar dóttir eins þeirra er myrt. Samband þeirra er spennuþrungið þar sem einn þeirra var misnotaður í æsku og gæti þar fyrir utan verið morðinginn.
Leikararnir eru allir í toppformi og það er ekki hægt að segja annað en að það sé hreint og klárt dekur við áhorfendur að bjóða upp á annan eins leikarahóp, með Laurence Fishburne og Marcia Gay Harden traust í aukahlutverkum, og Sean Penn lang fremstan meðal jafninga. Það er ótrúlegur slagkraftur í þessum eðaltöffara sem fer algerlega á kostum í túlkun sinni á niðurbrotnum föður fórnarlambsins sem er ekki allur þar sem hann er séður og glímir við drauga fortíðarinnar eins og aðrar persónur myndarinnar.
| 21:36 |