»  kvikmyndir  »  Tveggja tíma sigling í sjóorrustu
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Tveggja tíma sigling í sjóorrustu
Föstudagur, 28. nóvember 2003

Master and Commander
[3]

crowe.gifMaster and Commander er risastórmynd samkvæmt Hollywoodstöðlum; hún var fokdýr í framleiðslu og ekkert var til sparað við gerð sviðsmyndar sem er nákvæm eftirlíking 200 ára gamals bresks herskips, hún skartar einum vinsælasta leikara samtímans í aðalhlutverki og er stýrt af leikstjóra sem kann kvikmyndagerð upp á sína tíu fingur.

Þessi formúla er engin gulltrygging fyrir gæðum en hér er hún að virka ágætlega og Master and Commander er ákaflega vönduð, vel leikin og fagmannleg í alla staði.
Þeir sem telja sig vera að mæta í æsispennandi stríðsveislu gætu þó orðið fyrir nokkrum vonbrigðum þar sem það tekur um tvo tíma að sigla inn í aðalbardagann. Þeim sem hafa gaman að karlagrobbi og töffaraskap leiðist þó varla á leiðinni og enginn verður svikinn af tilkomumikilli sjóorrustunni í lokin.
Russell Crowe er vitaskuld drifkraftur myndarinnar og fer létt með að túlka skipstjórann Jack Aubrey sem er karl í krapinu með hjarta úr gulli, eða því sem næst. Hlutverkið reynir þó ekki mikið á Crowe sem gæti sjálfsagt verið svalur í dauðadái.
Sem sagt flott og vönduð stórmynd sem leggur meira upp úr áherslu á smáatriði og persónur en bardaga.


| 20:44 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff