Laugardagur, 06. desember 2003
Love Actually
[4]
Handritshöfundurinn Richard Curtis veit hvađ hann syngur ţegar hann er á rómantísku nótunum. Love Actually er fyrsta leikstjórnarverkefni hans og hún sver sig í ćtt viđ ţćr rómantísku gamanmyndir sem hann hefur skrifađ á síđustu árum. Efnistökin eru áţekk og rétt eins og í Four Weddings and a Funeral, Notting Hill og Bridget Jones fer sjarmatrölliđ Hugh Grant međ mikilvćgt hlutverk í Love Actually.
Myndin sker sig ţó úr ađ ţví leyti ađ hér segir Curtis ástarsögur óvenju margra einstaklinga og fléttar ţćr saman í eina alls herjar feelgood mynd sem ćtti ađ koma öllum í jólaskap en myndin hefst einmitt fimm vikum fyrir jól og eins og náttúrulögmálin gera ráđ fyrir eykst ástinni ásmeginn eftir ţví sem jólin ţokast nćr.
Ţađ má helst finna ađ lengd myndarinnar en mikill fjöldi ađalpersóna teygir óhjákvćmilega svolítiđ á lopanum. Ţetta er ţó algert aukaatriđi ţar sem Curtis teflir fram ótrúlega glćsilegum leikarahóp sem fer létt međ ađ heilla áhorfendur. Ţađ mćđir mikiđ á ţungaviktarfólkinu Hugh Grant, Colin Firth, Liam Neeson, Emmu Thompson og Alan Rickman en ađrir leikarar gefa ţeim ekkert eftir og ţannig stelur Bill Nighy hverri senunni á fćtur annarri ţegar hann nánast endurtekur hlutverk sitt úr Still Crazy. Alveg óborganlegur gaur.
Rowan Atkinson er hins vegar ofaukiđ en Curtis reynir jafnan ađ trana ţessum gamla félaga sínum fram. Hann var stílbrot á Four Weddings og hér er hann alveg út úr kú.
Annars er ekki hćgt ađ segja annađ en ađ Love Actually sé frábćr skemmtun og ţörf áminning um ađ ţađ er fyrst og fremst ástin og náungakćrleikurinn sem eru haldreipi okkar í sturluđum heimi hryđjuverka og stríđsátaka.
| 21:53 |