»  kvikmyndir  »  Heljarlókur á leið til Helvítis
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Heljarlókur á leið til Helvítis
Laugardagur, 06. desember 2003

Wonderland
[3]


wonder.gifKlámmyndaleikarinn John Holmes var goðsögn í lifenda lífi í sínum bransa, aðallega vegna þess að hann guð blessaði hann með einum stærsta belli sem sögur fara af. Hann lék í gríðarlegum fjölda klámmynda þegar hann var sem harðastur en hann lést slippur og snauður úr eyðni árið 1988.

Stærð miðfótar hans hefur þó orðið til þess að hann er ekki enn öllum gleymdur og nú gefst þeim sem ekki voru komnir til vits og ára þegar hann tröllreið klámmyndaheimum tækifæri til að kynnast kauða betur í Wonderland.
Myndin rekur að vísu ekki sögu leikarans, ris hans og fall, heldur fjallar hún um hrottalegt fjöldamorð sem framið var í húsi við Wonderlandbraut í Los Angeles sumarið 1981 en Holmes blandaðist í rannsókn morðmálsins.
Wonderland rekur aðdraganda morðanna frá ólíkum sjónarhornum þar sem Holmes er bæði sakfelldur og hann sjálfur fær að fegra sinn hlut. Þessi frásagnarháttur gengur ágætlega upp og heldur athygli áhorfandans. Þar fyrir utan er myndin hrá, ljót og fram úr hófi ruddaleg á köflum sem er allt hið besta mál.
Val Kilmer á ekki í nokkrum vandræðum með að leika skítalabba, sýnir fantagóðan leik og fer létt með að koma forheimskum og vonlasum fíklinum John Holmes til skila og Dylan McDermott úr The Practise sýnir á sér nýja og skemmtilega hlið sem tætingslegur smákrimmi. Allt annað að sjá til drengsins hér en á Skjá Einum.
Wonderland er ekki beinlínis skemmtileg mynd en hún er áhugaverð og mögnuð á köflum en það þarf varla að taka það fram að hún er ekki allra, frekar en myndirnar hans John Holmes.


| 21:59 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff