»  kvikmyndir  »  Þreytandi geðsjúklingur
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Þreytandi geðsjúklingur
Mánudagur, 01. desember 2003

Cold Creek Manor
[1]

Dennis Quaid og Sharon Stone sýna lítil tilþrif og eru nánast bara léleg í hlutverkum hjóna sem gefast upp á stórborgarlífinu í New York og flytja ásamt tveimur börnum sínum í sveitina. Þau kaupa niðurnítt óðalssetur á
slikk úr þrotabúi en eru varla flutt inn þegar fyrri eigandi (Stephen Dorff) rekur inn nefið og gerir sig líklegan til vandræða.

Það er ljóst strax við fyrstu kynni að gaurinn er ekki með öllum mjalla og er með óhreint mjöl í pokahorninu og þegar Quaid fer að róta í fortíð mannsins stofnar hann sér og sínum í stórhættu.
Allt hljómar þetta býsna kunnuglega og það verður því miður að segjast eins og er að í þessu tilfelli verður þessi gamla tugga beinlínis þreytandi. Myndin fer ágætlega af stað og einhver óþægilegur drungi og óljós ógn hvíla yfir gamla setrinu frá upphafi. Stemningin dettur þó fljótt niður og myndin fer aldrei út fyrir formúluna, kemur aldrei á óvart og er því frekar óspennandi.
Sagan er sáraeinföld en það er reynt að dýpka hana með ákveðnum vísbendingum um brenglað fjölskyldulíf fyrri eigenda hússins. Þetta gleymist svo allt og það er skilið svo mikið eftir af lausum endum að maður er litlu nær um fortíð brjálæðingsins í lokin. Það að líkja Cold Creek Manor við Cape Fear er því algerlega út í hött og hún stenst þann samanburð
engan veginn.


| 21:22 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff