Þriðjudagur, 23. desember 2003
The Return of the King
[5]
Það þarf varla að segja þeim sem séð hafa The Fellowship of the Ring og The Two Towers vita sjálfsagt að The Return of the King er frábær mynd. Hún gefur þeim fyrri ekkert eftir og gengur þvert á móti lengra í mikilfengleikanum og gulltryggir um leið að þríleikur Peters Jackson um Hringadróttins sögu er einstakt verk í kvikmyndasögunni, algerlega án hliðstæðu.
Tæknibrellurnar í myndinni eru yfirgegnilega flottar og bardagatriðin hér toppa það sem Jackson hefur áður gert og þá er mikið sagt. Styrkur Hringadróttins sögu felst ekki síst í því að brellurnar þjóna allar tilgangi sögunnar og skyggja aldrei á persónurnar, eitthvað sem George Lucas og Wachowski bræður hafa klikkað illilega á undanfarið.
The Return of the King er rúmir þrír klukkutímar og fyrir vikið langlengsta myndin í bálkinum en það er varla hægt að segja að maður finni fyrir lengdinni enda frá mörgu að segja og margir hnútar sem þarf að endahnýta. Ef menn nenna má tína til einhverja smágalla en myndin er eiginlega yfir gagnrýni hafin í mikilfengleik sínum.
Leikararnir eru allir í toppformi, það gustar sem fyrr af Ian McKellen í hlutverki Gandálfs og Viggo Mortensen er með töffið algerlega á hreinu í hlutverki Aragorns, Legolas er flottur sem fyrr og Gimli sér um að halda uppi húmornum. Gollum er sem fyrr dásamlegur og það er sláttur á Sean Astin í hlutverki Sóma sem lætur hendur heldur betur standa fram úr ermum.
Alveg stórfengleg mynd.
| 23:41 |