»  kvikmyndir  »  Heiður og hugrekki
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Heiður og hugrekki
Fimmtudagur, 15. janúar 2004

The Last Samurai
[4]

Hvað svo sem segja má um Tom Cruise sem leikara þá verður ekki af honum tekið að hann kann að velja sér myndir þannig að nafn hans tryggir alltaf ákveðin gæði og selur bíómiða fyrir skrilljónir. Hann hittir beint í mark, eina ferðina, enn með The Last Samurai sem er ekta stórmynd hlaðin töffaraskap, flottum bardagatriðum og hæfilega þykku lagi af gömlum og góðum klisjum.

Cruise er hér í hlutverki fyllibyttunnar og uppgjafarhermannsins Nathan Algren sem hefur tekið þátt í ófáum indíánaslátrunum með riddaraliðinu en drekkur til að gleyma öllum viðbjóðnum sem hann hefur séð. Hann fær kjörið tækifæri til að rétta úr kútnum þegar fulltrúar Japanskeisara vilja ráða hann til að þjálfa nýtísku her sem ætlað er að brjóta á bak aftur uppreisn gamalla samúræja í landinu. Það er skemmst frá því að segja að eftir að Algren kemst í kynni við hinn magnað leiðtoga samúræjanna, Katsumoto, áttar hann sig á því að hann á miklu meira sameiginlegt með andstæðingi sínum og lendir nú öfugum megin við víglínuna og berst við hlið frumstæðs þjóðflokks gegn tæknivæddum árásarher.
Það eru vandfundir meiri töffarar í mannkynssögunni en samúræjarnir japönsku og þegar þeir eru komnir með Tom Cruise sér við hlið getur ekkert klikkað.
The Last Samurai er frábær hrísgrjónavestri sem svíkur ekki enda gerist myndin í Japan í gamla daga þegar orð eins og heiður og hugrekki skiptu einhverju máli.


| 22:03 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff