Föstudagur, 09. janúar 2004
In the Cut
[3]
Það fer ekkert á milli mála að Jane Campion hefur ætlað sér að gera óhefðbundinn sálfræðitrylli með In the Cut. Aðaláherslan er á persónusköpunina og frásögnin er nánast ljóðræn á köflum í rólegri en drungalegri atburðarás þar sem hrottafengin morð á ungum konum í anda Jack the Ripper eru í bakgrunninum.
Meg Ryan leikur bældu kennslukonuna Frannie sem er þó ekki öll þar sem hún er séð og undir dauðyflislegu yfirborðinu krauma villtir kynórar.
Bældar hvatir hennar fá óvænta útrás þegar hún flækist inn í morðmál og heillast af lögreglumanninum sem stýrir rannsókn þess. Hann er þó ekki heldur allur þar sem hann er séður og er í meira lagi dularfullur á köflum, gæti jafnvel verið morðinginn. Spennan í sambandi þeirra keyrir því myndina áfram fremur en sjálf morðgátan og með mikilli einföldun má segja að hér mætist 9 1/2 Weeks og Kiss the Girls þó In the Cut eigi annars lítið sameiginlegt með þeim myndum sem eiga svo aftur ekkert sameiginlegt.
Meg Ryan tekst ágætlega að hrista af sér rómantísku grínímyndina sem hefur loðað við hana hingað til en það er Mark Ruffalo sem gerir þess mynd að sinni með frábærum leik í hlutverki lögreglunnar.
In the Cut er hrá og Campion er, sem fyrr ófeimin, við að sýna bert hold og þannig fá áhorfendur að berja brjóstin á Meg Ryan augum og þar sem evrópska útgáfan er sýnd hérna slæðast munnmök og limur í fullri reisn með. Það þykir svo sem ekkert merkilegt nú til dags og Campion hefði þurft að ganga töluvert lengra til að toppa Baise-Moi, Irréversible, Intimacy og Romance X sem allar hafa gert út á kynlífssenur sem sýna allt.
Myndin er sem fyrr segir býsna róleg framan af en nær þó strax tökum á áhorfandanum en þrátt fyrir góðan vilja leikstjórans rennur hún óvænt út í ótrúlega fyrirsjánlegan og dæmigerðan farveg í lokin. Það dregur úr áhrifamættinum en breytir því ekki að In the Cut er áhugaverð mynd sem er vel þess virði að kíkja á.
| 23:16 |