Þriðjudagur, 03. febrúar 2004
Le Peuple migrateur
[4]
Heimildarmynd um farfugla? Hljómar kannski ekki beinlínis spennandi en ţegar mađur gefur sér Heim farfuglanna eftir Jacques Perrin finnst manni fátt eđlilegra en ţađ sé uppselt á ţessa opnunarmynd Frönsku kvöld eftir kvöld. Stórvirki er eina orđiđ sem mér finnst fanga snilldina í ţessari merkilegu mynd.
Perrin og félagar fylgja hér nokkrum farfuglategundum eftir og ná á ótrúlegan hátt ađ láta myndavélina elta ţá í háloftunum. Sum skotin eru hreint út sagt mögnuđ í fegurđ sinni og ţađ besta af öllu viđ ţessa mynd er ađ talmál er nánast ekkert. Perrin lćtur fuglana segja sögu sína sjálfa og ţeir gera ţađ međ glćsibrag. Fuglarnir eru nánast mannlegir í lífsbaráttu sinni sem verđur ţví bćđi skemmtileg, fyndin, harmţrungin og grimm.
Myndin hefđi ađ ósekju mátt vera ađeins styttri en annars er ekkert út á hana ađ setja og svađilfarir fjölskrúđugs farfuglahópsins í fallegri og hrikalegri náttúru allra heimsálfa ćtti ađ halda ungum sem öldnum hugföngnum ţessar rúmu 90 mínútur sem myndin tekur í sýningu.