Sunnudagur, 28. mars 2004
Peter Pan
[3]
Sagan af ævintýrum Péturs Pan er skothelt ævintýri og aðlögun þess að kvikmyndaforminu ætti ekki að geta klikkað en hin ömurlega Hook, eftir Steven Spielberg, sannaði þó því miður að það er hægt að eyðileggja allt þegar menn ætla að vera voða frumlegir og sniðugir.
Það eru engar slíkar æfingar í gangi í þessari vönduðu og skemmtilegu útgáfu af sögunni sígildu um drenginn sem vildi ekki eldast, Kaftein Kló og krókódílinn, týndu drengina og sögustelpuna Vöndu.
Myndin fylgir ævintýrinu vel eftir og söguþráðurinn er nánast sá sami og í gömlu Disney myndinni. Hér er þó meira svigrúm fyrir spennu og pælingar um gelgjuna, ástina og angistina sem fylgir því að verða fullorðin.
Kobbi Kló er frábær persóna og það er engin tilviljun að hann er einn ástsælasti Disney skúrkur allra tíma. Jason Isaacs fer hér hamförum í hlutverki Kobba og stelur hverri senunni á fætur annarri af Pétri sem er annars bráðskemmtilegur líka. Kobbi er enn meira fól í teiknimyndinni og yngstu bíógestirnir hljóta að freistast til þess að stinga hausnum af og til ofan í úlpuna og hugsa með söknuði til teiknimyndarinnar þegar hann er í sem mestum ham. Stálpaðri krakkar fá hins vegar miklu meira fyrir sinn snúð hér en hjá Disney.
Myndin iðar öll af lífsgleði og æskufjöri og það er varla hægt að segja að hér sé slegin ein feilnóta en það eina sem dregur úr spennunni og kraftinum er að sagan er að hvert einasta mannsbarn þekkir söguna eins og handarbakið á sér. Annars er hér á ferðinni frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna ekki síst af allir geta sammælst um að sjá hana með ensku tali.