Þriðjudagur, 23. mars 2004
Starsky & Hutch
[4]
Löggumyndin Starsky & Hutch byggir á þrautreyndri formúlunni um ólíku löggurnar sem er gert að vinna saman. Samstarfið fer illa af stað enda þola gaurarnir ekki hvor annan en eftir lífsháska og aðrar hremmingar tengjast þeir traustum vinaböndum.
Ekkert nýtt á ferðinni hérna enda kannski ekki við því að búast þar sem myndin byggir á samnefndum sjónvarpsþáttum frá diskótímanum. Það breytir því ekki að gamlar lummur geta verið góðar ef þær eru rétt matreiddar og Starsky & Hutch er hreint út sagt frábær skemmtun.
Þar munar vitaskuld mest um framlag aðalleikaranna Ben Stiller og Owen Wilson. Báðir eru þeir hörku gamanleikarar og eru aldrei betri en þegar þeir deila myndum saman. Þeir njóta sín í botn í hlutverkum diskólöggutöffaranna Starsky og Hutch og eru svo innilega meðvitaðir um það hversu hallærislegir þeir eru að þeir fara allan hringinn og verða æðislegir. Hárgreiðslan er út úr kú, fötin alveg á mörkunum og reykspólið ætti að vera mislukkað, en þvert á móti er þetta allt saman geggjað.
Sagan er algert aukaatriði og myndin er lítið annað en samansafn drepfyndinna og flottra atriða. Sem sagt hreinræktuð skemmtun sem reynir ekki að vera neitt annað.
Aukaleikarar standa sig með prýði og fylgja aðaltöffurunum vel eftir. Snoop Dog er svalur, Vince Vaughn kann vonda kallinn utanbókar, Carmen Electra stendur alltaf fyrir sínu og sama má segja um Will Ferrell og Chris Penn.
Fyrir þá sem ekki nenna að kveljast með Kristi er þetta besta myndin í bíó í dag.
Ekki spurning.
| 20:26 |