»  kvikmyndir  »  Byrgið veitir von
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Byrgið veitir von
Þriðjudagur, 20. apríl 2004

Rockville
[3]


Mikilvægi heimildarmynda á borð við Lalla Johns, Hlemm og nú Rockville verður seint ofmetið hvað svo sem mönnum finnst að öðru leyti um efnistök eða áherslur þeirra kvikmyndagerðarmanna sem leggja á sig það óeigingjarna starf að gefa "venjulegu fólki" innsýn í undirheima Reykjavíkur.

Í þessum myndum fær fólkið sem heitir einfaldlega "síbrotamenn" og "góðkunningjar lögreglunnar" andlit og segir frá vonum sínum og þrám sem hafa brostið og orðið að engu í brennivínsþoku og eiturlyfjavímu. Rockville gerir þessum mannlega þætti undirheimana prýðileg skil og það sem er mest um vert er að fíklarnir eiga alltaf einhverja von sem er þeirra haldreipi í batanum sem þeir hafa fundið í skjóli Guðmundar Jónssonar í Byrginu.
Það sem má helst finna að myndinni að Þorsteinn virðist ganga út frá því að áhorfandinn fyrirfram hafi ákveðna þekkingu á málefnum Byrgisins og stofnanda þess. Þeir sem hafa ekki fylgst með fréttum af hremmingum Byrgisins fá því ekki mjög skýra mynd af stöðu mála þó það sé auðvitað öllum ljóst að hún er ekki góð.
Þá er ekki gott að átta sig á Guðmundi sjálfum og það hefði að ósekju mátt ganga nær honum með myndavélinni og spurningum. Annars hef ég lítið út á myndina að setja annað en það að bati minn er ekki meiri en svo að ég pirrast þegar fólk hnígur niður á samkomum innblásið heilögum anda.


| 18:50 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff