»  kvikmyndir  »  Sprækir uppvakningar
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Sprækir uppvakningar
Sunnudagur, 04. apríl 2004

The Dawn of the Dead
[3]

The Dawn of the Dead er hressandi hryllingur og fyrir þá sem kunna að meta myndir af þessu tagi er hún sannkölluð himnasending. Hér er ekkert verið að teygja lopann og strax í upphafsatriðinu verður allt vitlaust þegar uppvakningar byrja að éta fólk og breyta því um leið í heiladauð skrímsli.
Blóðið er heldur ekki sparað og subbuskapurinn er til hreinnar fyrirmyndar. Myndin byggir á samnefndri mynd eftir George A. Romero, sem var brautryðjandi í uppvakningamyndum á sínum tíma, og greinir frá örlögum lítils hóps fólks sem leitar skjóls undan uppvakningaplágunni í yfirgefinni verslunarmiðstöð.

Það er ekki rétt að tala um endurgerð í þessu tilfelli, heldur miklu frekar skemmtilega og vandaða endurvinnslu. Hrátt yfirbragð og lítill framleiðslukostnaður gáfu myndum Romeros mikinn sjarma og þessum sjarma er viðhaldið með grófri áferð filmunnar og groddalegum klippingum. Þetta er fyrsta flokks framleiðsla með B-mynda áferð sem skilar sér fullkomlega.
Uppvakningar Romeros voru svo skemmtilega heillandi vegna þess hversu heimskir, slappir og hægfara þeir voru. Ógnin fólst í fjöldanum en það var ekkert mál að sigrast á einum og einum. Þessir nýju uppvakningar eru ekki eins mikil krútt enda fráir á fæti og nokkuð erfitt að kála þeim. Nýja myndin bætir það hins vegar upp með aukinni áherslu á persónurnar sem eru sumar býsna vel skrifaðar. Þá gefa alvöru leikarar á borð við Ving Rahmes, Sarah Polley og Jake Weber myndinni aukna vikt. Þá er húmorinn aldrei langt undan og maður á á hættu að skella upp úr í miðju blóðbaði. Sem sagt eðalstöff fyrir þá sem kunna að meta uppvakninga og gráglettinn viðbjóð. Öðrum er ráðlagt að halda sig heima.


| 22:13 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff