»  kvikmyndir  »  Teiknimynd fer í hundana
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Teiknimynd fer í hundana
Laugardagur, 17. apríl 2004

Scooby-Doo 2: Monsters Unleashed
[1]

Einhvern veginn hefði maður nú haldið að leikna myndin með hinum tölvuteiknaða Scooby-Doo frá árinu 2002 hefði átt að duga til þess að sannfæra alla um að ævintýri Shaggy, Velmu, Freds, Daphne og Scooby-Doo geta engan veginn borið uppi alvörubíómynd.

Teiknimyndirnar um gengið hafa ákveðinn sjarma, þó þær séu hallærislegar, og eru ágætlega geymdar á Cartoon Network. Bjánalegur og staðlaður söguþráður þeirra þolir þó alls ekki beina yfirfærslu yfir á hvíta tjaldið og persónurnar verða nánast óþolandi þegar þær eru af holdi og blóði og það sem er verst af öllu er að burðarásarnir Shaggy og Scooby eru með öllu óþolandi. Það er grátlegt að horfa upp á jafn efnilegan leikara og Matthew Lillard festast í hlutverki mannleysunnar Shaggy. Þar hefur með sanni góður biti farið í hundskjaft.
Scooby-Doo stendur þó nærri hjarta bandarískrar þjóðarsálar og fyrri myndin græddi nógu mikið af dollurum til þess að réttlæta aðra umferð. Það verður þó að segja þessari mynd til varnar að hún er eilítið skárri en forverinn en það er helst að Buffy gellan hún Sarah Michelle Gellar geri eitthvað af viti þegar hin bleika Daphne rís upp og lemur á skrímslunum að hætti blóðsugubanans. Þá klikkar Peter, gamli, Boyle ekki í litlu aukahlutverki. Annars eru leiðindin ríkjandi.


| 15:47 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff