»  kvikmyndir  »  Barnatímí í bíó
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Barnatímí í bíó
Miðvikudagur, 05. maí 2004

Drekafjöll
[1]

Drekafjöll er afskaplega einföld spænsk teiknimynd sem gerist á ævintýralegum stað sem virðist óháður tíma og rúmi. Þar búa býsna kátir drekar í sátt og samlyndi við mannverur sem einhverra hluta hafa villst til Drekafjalla. Undantekningin á þessu og eina mannskepnan sem unir hag sínum illa í Drekafjöllum er galdrakarlinn Hrekklyndur sem er haldið föngum í Drekafjöllum svo hann geri ekki óskunda í mannheimum.

Myndin greinir frá tilraunum Hrekklyndar til að sleppa frá Drekafjöllum og tilraunum ungs drengs og dreka til að gera þau áform að engu. Allt er þetta gert eftir hefðbundinni forskrift ævintýra og það verður að segjast eins og er að sagan nær aldrei flugi og grípur ekki sérstaklega.
Teikningarnar eru ágætar en standast vitaskuld ekki því besta sem kemur frá Hollywood í þessum geira snúning enda vart hægt að ætlast til þess. Það er vissulega ánægjulegt að menn skuli taka sig til og talsetja evrópskar teiknimyndir en Drekafjöll er þó varla myndin til að tryggja það að þetta verði regla frekar en undantekning. Hún er einfaldlega ekki nógu skemmtileg. Það er farið hratt yfir sögu í brotakenndum atriðum og svo er myndin einfaldlega of stutt. Minnir einna helst á langan sjónvarpsþátt og stendur vart undir bíóferð nema fyrir þau allra yngstu.


| 18:52 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff