»  kvikmyndir  »  Brad er akkilesarhællinn
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Brad er akkilesarhællinn
Fimmtudagur, 20. maí 2004

Troy
[3]

Troy er rosalega stór mynd enda varla við öðru að búast þar sem myndin er byggð á Illionskviðu Hómers sem er einn hornsteina bókmenntasögunnar og lykilverk í vestrænni menningu. Hér er því boðið upp á mikið sjónarspil og stórfengleg atriði en samt virkar þetta allt saman eitthvað óekta. Það er vissulega tilkomumikið að horfa yfir hafflötinn þakinn þúsundum grískra herskipa og ekki síður að sjá tvær fylkingar tugþúsunda hermanna lenda saman í áköfum bardaga. Stærðin er bara því miður ekki allt og hún breytir litlu þegar tilfinninguna vantar og það er einmitt tilfinningaleysi, yfir höfuð, sem háir myndinni.

Eftir hroðalega bardagaatriði í myndum eins og Braveheart og Saving Private Ryan er varla hægt að bjóða upp á stórar stríðssenur sem eru sneiddar allri þjáningu en hér falla menn unnvörpum án teljandi blóðsúthellinga, limlestinga og þjáninga.
Trójustríðið hefur sjálfsagt verið mildað til þess að takmarka ekki aðgengi yngri áhorfenda að myndinni en afleiðingin er sú að þeir sem sitja í salnum ná lítilli tengingu við hetjurnar á vígvellinum. Þá ná harmrænar persónurnar ná ekki að snerta taugar áhorfenda að Hektor, Trjóuprinsi frátöldum, en hann er langsterkasta persóna myndarinnar í meðförum Erics Bana sem er eini leikarinn sem er raunverulega að gera eitthvað af viti í öllum þessum stjörnufansi.
Orlando Bloom er vitaskuld voða krútt og stendur undir persónu Parísar sem fer það best að vera sætur og heilla konur. Hann sýnir þó enginn tilþrif fyrr en hann mætir konungi Spörtu í einvígi en þá breytist flagarinn á augabragði á skemmtilegan hátt í væluskjóðu. Stærsti akkilesarhæll myndarinnar er svo því miður Brad Pitt í hlutverki sjálfs Akkilesar. Pitt er vel vaxinn og sýnir mikið bert hold en það hlýtur andskotakornið að hafa verið hægt að finna meira karlmenni til þess að túlka þessa frægustu hetju menningarsögunnar.
Akkiles er hálfgerður málaliði sem berst einungis til þess að nafn hans muni lifa í gegnum aldirnar. Hann náði því markmiði en ef eitthvað væri eftir af jarðneskum leyfum hans myndi hann snúa sér við í gröfinni ef hann vissi að allt hefði þetta verið til þess eins að Brad Pitt fengi að fara í sandalana hans og setja upp hjálminn. Þannig að þó Hektor falli fyrir hendi Akkilesar við Tróju þá vinnur Eric Bana óumdeildan leiksigur á Pitt á tjaldinu.
Allt þetta nöldur mitt breytir því þó ekki að Troy er fínasta skemmtun, þó hún sé í lengri kantinum og það er vissulega ánægjulegt að Hollywood skuli gefa fornsögum svo mikinn gaum þessi misserin. Það fer þó alltaf um mann smá hrollur þegar sígild verk eru löguð að kröfum draumaverksmiðjunnar. Þetta slapp fyrir horn í The Passion of the Christ þar sem Kristur endaði á krossinum en í Troy taka menn sér full mikið skáldaleyfi þannig að þeir sem munu einungis kynnast Akkiles og félögum í bíó fá svikna útgáfu af Illionskviðu.
Það er nánast ófyrirgefanlegt að sögufrægar persónur sem lifðu stríðið af og fóru með lykilihlutverk í sígildum harmleikjum að herleiðangrinum loknum skuli drepnar hér til þess eins að þjóna markmiðum hins dæmigerða Hollywoodhandrits þar sem við verðum að hafa í það minnsta einn skúrk sem hlýtur makleg málagjöld. Myndina setur heilmikið niður við þetta en það er þó huggun harmi gegn að Akkiles fær ör í hælinn.


| 15:39 |
komment

þetta eru massíf comment hjá þér um þessa mynd..ég á reyndar eftir að sjá hana en hef hugsað mér að fara að koma því í verk sem fyrst....en af þessum útskíringum er hún ekki eins góð og ég hélt en það er nú öruglega persónubundið,....þannig að ég bíð spennt eftir því að sjá hana...:)

Nr. 1 | Sigurveig | 8.09.2004 | 21:41:54 | [+] |


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóðbönd

Taxi

Bloggar

Stöff