Miðvikudagur, 05. maí 2004
The Secret Window
[2]
Stephen King er vinsælasti hrollvekjusöguhöfundur samtímans og hann má eiga það kallinn að hann hittir oft í mark en inn á milli er hann æði mistækur. Það er því síður en svo trygging fyrir gæðum kvikmynda að nafn Kóngsins skuli tengjast þeim; myndir eins og The Shining, The Green Mile og The Shawshank Redemption eru góð dæmi um það þegar allt hefur gengið upp en einnig er til haugur af rusli sem byggir á sögum kappans og hefur farið rakleiðis á myndbandamarkað enda standa þær myndir engan vegin undir einni bíóferð.
The Secret Window er þarna einhvers staðar mitt á milli. Framleiðslan er metnaðarfull og teflt er fram ekki minni leikurum en Johnny Depp og John Turrturro. Það er vitaskuld sjálfsögð krafa til myndar sem skartar þessum þremur nöfnum að hún sé góð en hér vantar töluvert upp á.
Fyrir það fyrsta er hún allt of fyrirsjáanleg og King er að vinna með gamalkunn viðfangsefni sín; rithöfund sem er ofsóttur af brjálæðingi (Misery) og rithöfundi sem missir sjónar á skilunum milli ímyndunar og raunveruleika (The Dark Half, Umney´s Last Case).
Depp leikur rithöfundinn sem vaknar upp við það einn morguninn að klikkhaus, frábærlega leikinn af Turrturo, bankar upp á hjá honum og sakar hann um ritstuld. Vandamálin hlaðast síðan upp í einhverju sem gæti helst verið versta martröð Hannesar Hólmsteins, þangað til okkar maður virðist vera að ganga af göflunum.
Tvær snilldarmyndir um geðveiki og tvöfalt eðli mannskepnunnar, Psycho og Angel Heart, skjóta strax upp kollinum og The Secret Window bætir engu nýju við og er þar fyrir utan töluvert leiðinlegri en þessar myndir.
Þá eru vitaskuld stærstu vonbrigðin við The Secret Window að Johhny Depp er ekki að gera neitt af viti. Hann lullast í gegnum rulluna og gerir bara það sem þarf, er auðvitað andskotanum myndarlegri og þarf lítið að reyna á sig, og er meira að segja svo værukær að stundum glittir í Jack Sparrow þegar rithöfundurinn missir tökin á sjálfum sér.
Turrturo klikkar hins vegar ekki og lyftir myndinni upp en The Secret Window verður því miður engu að síður að teljast nokkur vonbrigði bæði fyrir aðdáendur Kings og Depp.
| 18:56 |