»  kvikmyndir  »  Kletturinn í drullupollinum
efnisflokkar

nýlegir dómar

nýleg komment

a long time ago...
Kletturinn í drullupollinum
Mánudagur, 12. júlí 2004

Walking Tall
[3]

Chris Vaughn, vöđvastćltur sérsveitahermađur, snýr aftur heim til litla smábćjarins síns eftir átta ára fjarveru til ţess eins ađ komast ađ ţví ađ fallegu heimahagarnir eru orđnir viđbjóđslegt lastabćli.
Gömlu myllunni, ađalvinnustađnum í bćnum, hefur veriđ lokađ og eina tekjulind samfélagsins er subbulegt spilavíti sem um leiđ er dreifingarmiđstöđ fyrir eiturlyf.

Til ađ bćta gráu ofan á svart er spilavítinu og sölumönnum dauđans stýrt af gömlum keppinauti Chris úr skóla og á ruđningsvellinum í gamla daga. Ţetta gengur auđvitađ ekki ţannig ađ Chris tekur málin í sínar hendur, beinbrýtur vondu kallana, rústar spilavítinu međ einni tréspýtu og í stađ ţess ađ fara í fangelsi fyrir lćtin er hann kosinn lögreglustjóri.
Ţá ćsist fyrst leikurinn og til magnađs lokauppgjörs kemur á milli skólafélaganna ţar sem öllum međulum er beitt, vélbyssum, sprengjum og öllu ţar á milli.
Fyrirfram getur mađur ekki gert miklar kröfur til myndar af ţessu tagi međ glímutröllinu The Rock (The Scorpion King) í ađalhlutverki. Svona dót er alla jafna rusl sem á ekkert erindi í bíó og er best geymt á hillum myndbandaleiga. Ţađ má ţví segja ţessari mynd til hróss ađ hún slagar vel upp í međallagiđ.
The Rock er alls ekki svo slćmur og leysir ţá heillum horfnu harđhausa Steven Seagal og Van Damme af međ glćsibrag enda, ađ ţví er virđist, hćfileikaríkari en ţeir báđir til samans. Ţá sér erkifífliđ Johnny Knoxville úr Jackass um ađ halda gríninu gangandi í hlutverki undirmanns löggustjórans góđa. Býsna skemmtilegur gaur og svo fer ţađ Neal McDonough (saksóknaranum í Boomtown) býsna vel ađ leika skítalabba.
Walking Tall er ekki merkileg mynd en manni leiđist ekkert yfir henni og í ţessum geira verđur ţađ ađ teljast býsna gott.


| 21:29 |
komment


skrifa komment


Muna upplýsingar?
















Blóđbönd

Taxi

Bloggar

Stöff